Skip to Content
NPA miðstöðin svf.
  • NPA miðstöðin
    • Staðsetning
    • Samþykktir
    • Stjórn og starfsfólk
    • Ársskýrslur
    • Siðasáttmáli
    • Pistlar
    • Persónuverndarstefna
  • NPA
    • Hvað er NPA?
    • Hugmyndafræðin
    • Hlutverk NPA miðstöðvarinnar
    • Hlutverk og ábyrgð verkstjórnanda
    • Hlutverk aðstoðarverkstjórnanda
    • Hlutverk aðstoðarfólks
    • Skýrslur, rannsóknir og kannanir
  • Félagsfólk
    • Viltu vera með?
    • Handbók Verkstjórnenda
    • Siðasáttmáli
    • Ráðningarform
    • Ráðgjöf iðjuþjálfa
    • Tímon tímaskráning
  • Aðstoðarfólk
    • Störf í boði
    • Kjarasamningar
    • Hlutverk aðstoðarfólks
    • Hlutverk aðstoðarverkstjórnanda
    • Bakvarðarsveit
    • Siðasáttmáli
    • Fæðingarorlof
    • Launakjör Aðstoðarfólks
    • Vinnuslys
    • Handbók aðstoðarfólks
  • Viðburðir
  • 0
  • Hafðu samband
NPA miðstöðin svf.
  • 0
    • NPA miðstöðin
      • Staðsetning
      • Samþykktir
      • Stjórn og starfsfólk
      • Ársskýrslur
      • Siðasáttmáli
      • Pistlar
      • Persónuverndarstefna
    • NPA
      • Hvað er NPA?
      • Hugmyndafræðin
      • Hlutverk NPA miðstöðvarinnar
      • Hlutverk og ábyrgð verkstjórnanda
      • Hlutverk aðstoðarverkstjórnanda
      • Hlutverk aðstoðarfólks
      • Skýrslur, rannsóknir og kannanir
    • Félagsfólk
      • Viltu vera með?
      • Handbók Verkstjórnenda
      • Siðasáttmáli
      • Ráðningarform
      • Ráðgjöf iðjuþjálfa
      • Tímon tímaskráning
    • Aðstoðarfólk
      • Störf í boði
      • Kjarasamningar
      • Hlutverk aðstoðarfólks
      • Hlutverk aðstoðarverkstjórnanda
      • Bakvarðarsveit
      • Siðasáttmáli
      • Fæðingarorlof
      • Launakjör Aðstoðarfólks
      • Vinnuslys
      • Handbók aðstoðarfólks
    • Viðburðir
  • Hafðu samband

Til baka

Uppsögn eða starfslok


UppsagnirUppsagnarfrestur aðstoðarfólksAndlát verkstjórnandaLokauppgjör

Uppsagnir


Uppsagnarfrestur er gagnkvæmur milli aðstoðarfólks og verkstjórnenda. Æskilegast væri að allar upplýsingar í uppsagnarferli sé miðlað til aðstoðarfólks á sama tungumáli og er notað í ráðningarsamningi. Það er mikilvægt að allar upplýsingar sem gefnar eru séu vel skiljanlegar við uppsögn.

Ef til þess kemur að kemur að verkstjórnandi þinn ákveði að segja þér upp í starfi skal verkstjórnandi þinn afhenda eða senda þér skriflegt uppsagnarbréf þar sem kemur fram hversu langan uppsagnarfrest þú hefur og hvort að vinnuframlagi sé óskað í uppsagnarfresti. Ekki er skylda að setja ástæðu uppsagnar á uppsagnarbréf.

Verkstjórnandi getur óskað eftir því að þú mætir í vinnu á meðan að uppsagnarfresturinn stendur yfir. Ef þú ferð ekki eftir þeim kröfum verkstjórnanda að vinna uppsagnarfrestinn, þá ert þú að hafna rétti þínum til launa á tímabilinu.      

Í þeim tilfellum sem verkstjórnandi óskar ekki eftir vinnuframlagi aðstoðarfólks í uppsagnarfresti þýðir það að uppsögn tekur gildi samdægurs og að launin sem þú hefðir annars fengið fyrir að vinna út uppsagnarfrestinn verða greidd í lok mánaðar.

Aðstoðarfólk getur hætt störfum að eigin ósk. Þegar þú lætur af störfum ættir þú að segja til um hvenær þú vilt hætta, þ.e. ósk um síðasta vinnudag. Þú getur sagt upp með löngum fyrirvara og er það ávallt æskilegt, til dæmis tilkynnt að þú vinnir út veturinn til 30. apríl.

Ef þú ert með ótímabundinn ráðningarsamning og óskar eftir því að hætta störfum verður þú að gera það skriflega. Þú getur haft samband við ráðgjafa miðstöðvarinnar og fengið upplýsingar um réttindi og aðstoð við að orða uppsögn þína til að senda til verkstjórnenda. Síðasti vinnudagur þinn er háður réttmætum uppsagnarfresti skv. kjarasamningum og ætti að vera nefndur í bréfinu.

Ef þú ert með afleysingar/tímavinnu ráðningarsamning þarftu ekki að segja upp sérstaklega. Þú getur alltaf „hætt“ með því að neita því að vinna framvegis og verkstjórnandi getur alltaf „sagt þér upp“ með því að skipuleggja ekki fleiri vaktir á þig. Athugaðu þó að þetta á ekki við ef þú hefur unnið lengi reglulegar vaktir, þó það standi á ráðningarsamningi að þú sért með afleysingar samning. Þá gildir meðaltal starfshlutfalls síðustu mánaða.

 


Uppsagnarfrestur aðstoðarfólks


Ef þú ert ráðin/n/ð í tímabundna vinnu þarf ekki að segja þér upp sérstaklega. Starfi þínu lýkur um leið og tímabil ráðningar er lokið. Ef þér er hins vegar sagt upp eða þú hættir störfum fyrir lok tímabils áttu lögbundinn uppsagnarfrest.

Ef þú ert ráðin/n/ð í ótímabundið starf áttu lögbundinn uppsagnarfrest. Uppsagnarfresti er háttað sem hér segir:

Fyrstu tvær vikurnar í starfi: Enginn uppsagnarfrestur

Eftir tveggja vikna samfellt starf: 12 almanaksdagar

Eftir 3 mánuði samfellt í starfi: 1 mánuður m.v. mánaðarmót

Eftir 2 ár samfellt í starfi: 2 mánuðir m.v. mánaðarmót

Eftir 3 ár samfellt í starfi: 3 mánuðir m.v. mánaðarmót

Uppsagnarfrestur gildir fyrir báða aðila þannig að sami uppsagnarfrestur á við hvort sem þú segir upp sjálf/ur/t eða verkstjórnandi þinn segir þér upp störfum. 



Andlát verkstjórnanda


 Ef verkstjórnandi þinn fellur frá þá gildir uppsagnarfrestur þinn. Hafi vaktaplan ekki legið fyrir áður en andlát verkstjórnanda bar að, verða laun reiknuð út frá meðaltali af unnum tímum síðastliðna 6 mánuði.



Lokauppgjör


 Að loknum uppsagnarfresti er greitt út svokallað lokauppgjör. Það er síðasta launagreiðslan þín frá NPA miðstöðinni. Inn í hana fer uppsöfnuð desember- og orlofsuppbót. Því er mikilvægt að tilkynna uppsögn til NPA miðstöðvarinnar. Almennt á verkstjórnandi eða aðstoðarverkstjórnandi að tilkynna uppsagnir en stundum getur þótt nauðsynlegt fyrir aðstoðarfólk að fylgja því eftir eða að tilkynna uppsögn hvort sem hún kemur frá þér eða verkstjórnanda þínum. Þetta er önnur ástæða þess að það er mikilvægt að uppsögn sé ávallt skrifleg svo hægt sé að reikna út lokauppgjör út frá réttum forsendum.

Uppsafnað orlof situr áfram inn á orlofsreikningi þínum og verður greitt út 11 maí. Ef lokauppgjör er gert eftir síðustu orlofsgreiðslu þýðir það að greiðsla af orlofsreikningi verður greidd út í maí næsta árs. Sé þess óskað að fá orlofið greitt út strax þarf að sækja um það sérstaklega hjá verkstjórnanda sem sendir þá beiðni til NPA miðstöðvarinnar um að sækja um úttekt af orlofsreikningi þínum.



Sjálfstætt líf

Starfið

Ráðningar 

Ferðalög

Siðferðisleg álitamál

Uppsögn/ starfslok

Orlof og fæðingarorlof

Skipulag og vaktir

Hlutverk og ábyrgð

Laun aðstoðarfólks

Veikindaréttur og tryggingar

Sími: +354 567 8270
Tölvupóstur: npa@npa.is

Opnunartími: 
Mán-fim. kl. 10:00-15:00 Fös. kl. 10:00-13:00

Urðarhvarf 8A, 2. hæð, 203 Kópavogur
Skipagata 16, 2. hæð, 600 Akureyri
Kennitala: 660710-0270


  • Kökur
  • •
  • Um okkur
  • •
  • Innskráning

Fylgdu okkur

We use cookies to provide you a better user experience on this website. Cookie policy
 Only essentials I agree