Skip to Content
NPA miðstöðin svf.
  • NPA miðstöðin
    • Staðsetning
    • Samþykktir
    • Stjórn og starfsfólk
    • Ársskýrslur
    • Siðasáttmáli
    • Pistlar
    • Persónuverndarstefna
  • NPA
    • Hvað er NPA?
    • Hugmyndafræðin
    • Hlutverk NPA miðstöðvarinnar
    • Hlutverk og ábyrgð verkstjórnanda
    • Hlutverk aðstoðarverkstjórnanda
    • Hlutverk aðstoðarfólks
    • Skýrslur, rannsóknir og kannanir
  • Félagsfólk
    • Viltu vera með?
    • Handbók Verkstjórnenda
    • Siðasáttmáli
    • Ráðningarform
    • Ráðgjöf iðjuþjálfa
    • Tímon tímaskráning
  • Aðstoðarfólk
    • Störf í boði
    • Kjarasamningar
    • Hlutverk aðstoðarfólks
    • Hlutverk aðstoðarverkstjórnanda
    • Bakvarðarsveit
    • Siðasáttmáli
    • Fæðingarorlof
    • Launakjör Aðstoðarfólks
    • Vinnuslys
    • Handbók aðstoðarfólks
  • Viðburðir
  • 0
  • Hafðu samband
NPA miðstöðin svf.
  • 0
    • NPA miðstöðin
      • Staðsetning
      • Samþykktir
      • Stjórn og starfsfólk
      • Ársskýrslur
      • Siðasáttmáli
      • Pistlar
      • Persónuverndarstefna
    • NPA
      • Hvað er NPA?
      • Hugmyndafræðin
      • Hlutverk NPA miðstöðvarinnar
      • Hlutverk og ábyrgð verkstjórnanda
      • Hlutverk aðstoðarverkstjórnanda
      • Hlutverk aðstoðarfólks
      • Skýrslur, rannsóknir og kannanir
    • Félagsfólk
      • Viltu vera með?
      • Handbók Verkstjórnenda
      • Siðasáttmáli
      • Ráðningarform
      • Ráðgjöf iðjuþjálfa
      • Tímon tímaskráning
    • Aðstoðarfólk
      • Störf í boði
      • Kjarasamningar
      • Hlutverk aðstoðarfólks
      • Hlutverk aðstoðarverkstjórnanda
      • Bakvarðarsveit
      • Siðasáttmáli
      • Fæðingarorlof
      • Launakjör Aðstoðarfólks
      • Vinnuslys
      • Handbók aðstoðarfólks
    • Viðburðir
  • Hafðu samband

Til baka

Orlof og fæðingarorlof


Orlof aðstoðarfólksOrlofstímabiliðFrí utan hefðbundins orlofstímaÚtborgun orlofslauna utan hefðbundins orlofstímaHvernig óskar aðstoðarfólk eftir fríi? Hvað á aðstoðarfólk rétt á miklu fríi?Veikindi í orlofiAnnað orlof og leyfiSkipulagt leyfiFæðingarorlof Hver eiga rétt á fæðingarorlofi? Fæðingarorlof tilkynntTilhögun á fæðingarorlofiFæðingarorlofsréttur er verndaður með lögumÍtarlegri upplýsingar um fæðingarorlofSorgarleyfi

Orlof aðstoðarfólks


Hafa skal í huga að orlofslaun og réttur til að taka frí eru tvennt ólíkt. Allt aðstoðarfólk sem er ráðið í ótímabundið starf á alltaf rétt á því að taka frí. Þessi réttur er óháður því að það hafi aflað sér orlofslauna og geti tekið launað orlof eða ekki.

Aðstoðarfólk fær greidd út orlofslaun ofan á launin sín inn á sérstakan orlofsreikning í banka. Almennt orlof nemur 10,17%, þ.e. 24 frídögum á ári, en orlofsréttindi aukast eftir því sem starfsaldur eykst. Öll eiga rétt á að taka 24 daga orlof á ári, jafnvel þó þeir eigi ekki rétt til orlofslauna allan þann tíma. 

Orlofstímabilið


Aðstoðarfólk á rétt á að taka að minnsta kosti 24 daga í orlof á orlofsárinu. Það er lágmarksorlof. Á orlofstímabilinu, þ.e. frá 2. maí til 30. september ár hvert á aðstoðarfólk rétt á að taka fjórar vikur samfelldar, 20 virka daga, í orlof. Hægt er að skipta orlofinu upp eða geyma milli tímabila ef verkstjórnandi þinn samþykkir slíkt fyrirkomulag.

Taka orlofs  er samkomulag milli aðstoðarfólks og verkstjórnenda. Æskilegt er að verkstjórnandi reyni eftir fremsta megni að koma til móts við óskir aðstoðarfólk um orlofstíma en því miður er það þó ekki alltaf hægt. Ef upp kemur sú staða að verkstjórnandi þinn geti ekki orðið við óskum þínum um orlofstíma vegna þess t.d. að það gæti ógnað öryggi verkstjórnanda eða komið niður á gæðum þjónustunnar sem viðkomandi hefur rétt á, þá getið þið komið ykkur saman um annað tímabil.

Aðstoðarfólki ber að senda inn óskir um orlof tímanlega áður en orlofstímabilið hefst, þ.e. fyrir 2. maí ár hvert. Skynsamlegast er til dæmis að koma orlofsmálum á hreint í mars á hverju ári. Þá hefur bæði verkstjórnandi þinn og þú tíma til að útbúa áætlun.

Æskilegt er að verkstjórnandi tilkynni aðstoðarfólki sínu um hvenær orlof skal hefjast í síðasta lagi mánuði fyrir byrjun orlofs á hverjum tíma. 



Frí utan hefðbundins orlofstíma


 Ef aðstoðarfólk vill fá frí á öðrum tíma ársins en á milli 2. maí og 30. september, getur verkstjórnandinn þinn veitt það ef skipulagið leyfir. Aðstoðarfólk getur þá nýtt uppsafnaða orlofsdaga sem viðkomandi á eftir og hafa ekki verið nýttir á orlofstímabilinu, hvort sem um er að ræða einstaka frídaga eða lengri frí.

Það er mikilvægt fyrir þig að vera meðvituð/aður/að um hvað gengur upp fyrir þinn verkstjórnanda og hver réttindi þín eru. Þó að aðstoðarfólk eigi inni orlofsdaga þýðir það ekki að það eigi sjálfkrafa rétt á að nýta sér þá utan orlofstímabils. Það er þó yfirleitt góð regla að verkstjórnendi reyni að verða við óskum aðstoðarfólks varðandi tilhögun frídaga, en það er ekki sjálfsagt þar sem verkstjórnandi þinn getur ekki verið án aðstoðar

Verkstjórnandi getur einnig sett tiltekið tímabil á hverju ári sem fast orlofstímabil fyrir allt aðstoðarfólk sitt. Verkstjórnandi ber ábyrð á því að upplýsa aðstoðarfólk sitt um slíkt.



Útborgun orlofslauna utan hefðbundins orlofstíma


 Enginn á sjálfkrafa rétt á því að taka út orlofslaunin sín fyrirfram. Eina heimildin til þess að taka út orlofið fyrirfram er að verkstjórnandi þinn sendi beiðni á bókhaldsdeildina hjá NPA miðstöðinni, sem síðan sendir beiðni á  bankann þar sem orlofið er geymt og óskar eftir útborgun orlofslauna ef aðstoðarfólk óskar eftir því að taka frí utan hefðbundins orlofstímabils, þ.e. að taka sér fríið fyrirfram. Tilgangur orlofslauna er að gefa vaktavinnufólki, eins og aðstoðarfólki NPA miðstöðvarinnar, tækifæri til að taka sér frí án þess að vera launalaust. Í raun ætti að liggja fyrir að aðstoðarfólk sé að fara í orlof sé þess óskað að fá orlofslaunin greidd út á öðrum tíma en í maí.

Til að fá orlofslaun greidd út þarf samþykki alltaf að koma frá verkstjórnanda um hvort aðstoðarfólki er heimilt að taka orlofið sitt út fyrirfram og koma þeirri beiðni á framfæri. Verkstjórnandi hringir í ráðgjafa sinn hjá NPA miðstöðinni og lætur vita að tiltekinn aðstoðarmanneskja fái leyfi til að taka út orlofið sitt fyrirfram. Verkstjórnandi getur líka samþykkt að aðstoðarfólk taki orlofið út allt í einu, eða tiltekna upphæð.



Hvernig óskar aðstoðarfólk eftir fríi? 


 Aðstoðarfólk sækir um orlof hjá sínum verkstjórnanda. Sem yfirmaður og verkstjórnandi ákveður viðkomandi hvernig orlof síns aðstoðarfólks er skipulagt með hliðsjón af þjónustuþörf verkstjórnanda. Verkstjórnandi ber ábyrgð á því að tilkynna aðstoðarfólki sínu tímanlega hvernær aðstoðarfólk þarf að vera búið að óska eftir fríi fyrir upphaf orlofstímabilsins og hvenær aðstoðarfólk fær staðfestingu á því hvenær það getur tekið frí. Verkstjórnandi ætti að vera með skýr viðmið og reglur um hvernig aðstoðarfólk sækir um frí. Þegar verkstjórnandi ákveður frí aðstoðarfólks ber viðkomandi að hafa ákveðið jafnræði í huga, þ.e. að sama aðstoðarfólk fái ekki alltaf frí á „besta“ tíma sumars ef margir eru að óska eftir frítöku á því tímabili.



Hvað á aðstoðarfólk rétt á miklu fríi?


 Frítökuréttur aðstoðarfólks er talinn í „orlofsdögum“. Frítökurétturinn er ekki sá sami og orlofslaunin, þ.e. réttur aðstoðarfólks til að taka frí er ekki í beinu sambandi við rétt þeirra til að fá greidd orlofslaun.

Samkvæmt lögum skal orlof vera að minnsta kosti tveir dagar fyrir hvern unninn mánuð á orlofsárinu, eða 24 dagar yfir árið. Það telst vera vinnutími þó aðstoðarfólk hafi verið frá vegna veikinda. Orlofslaunum er svo umbreytt í tíma út frá orlofsrétti og greidd út. Þannig er orlofslaunahlutfalllið 10,17% að lágmarki þegar réttur til orlofsdaga er 24 dagar

Aðstoðarfólk vinnur sér svo inn aukin réttindi eftir því sem það vinnur lengur. Hér er samantekt yfir orlofsréttinn:

Lágmarksorlof er 24 virkir dagar og orlofslaun 10,17% af öllu kaupi.

Aðstoðarfólk sem hefur unnið í 5 ár hjá verkstjórnanda eða NPA miðstöðinni eða í 10 ár innan sömu starfsgreinar á rétt á 25 daga orlofi og orlofslaunum sem nema 10,64%.

Aðstoðarfólk sem hefur starfað hjá verkstjórnanda í 10 ár eða fleiri öðlast 30 daga orlofsrétt og 13,04% orlofslaun.

Aðstoðarfólk á rétt á að taka a.m.k. 20 virka daga í samfellt frí á orlofstímabilinu. Ef verkstjórnandi getur ekki samþykkt allt tímabilið sem þú óskar eftir átt þú rétt á 25% álagi á orlofið. Þetta á einnig við ef verkstjórnandi óskar eftir því að þú takir orlof utan hefðbundins orlofstíma. Hins vegar á það ekki við ef aðstoðarfólk óskar eftir því að taka styttra frí eða ef þú óskar eftir að taka frí utan hefðbundins orlofstíma.


Veikindi í orlofi


 Veikindi teljast ekki sem orlof. Ef veikindi koma upp hjá aðstoðarfólki í orlofi átt þú rétt á að tilkynna það sem veikindadag í stað orlofsdags. Aðstoðarfólk verður svo að nýta sér orlofsdaginn sem féll niður á sama orlofsári. Veikindi í orlofi verður aðstoðarfólk að tilkynna verkstjórnanda um leið og þau koma upp í orlofinu. Veikindin verða líka að vera þess eðlis að viðkomandi gat ekki gert það sem hann annars hefði gert í orlofinu.


Annað orlof og leyfi


 Aðstoðarfólk getur átt rétt á að fara í leyfi frá vinnu án þess að það sé beinlínis frí. Í þessari handbók er það kallað skipulagt leyfi, því það er ekki ófyrirséður atburður heldur eitthvað sem aðstoðarfólk og verkstjórnandi geta skipulagt að vissu
marki.

Hve mikið þú getur ákveðið í þessum efnum ræðst af því hvers konar leyfi eða orlof er um að ræða. Þess vegna er gott að vita hvað á við um mismunandi tegundir orlofs.


Skipulagt leyfi


 Verkstjórnandi getur veitt aðstoðarfólki sínu leyfi frá störfum um tiltekinn tíma eða vegna tiltekinna aðstæðna sem koma upp hjá viðkomandi. Þetta eru jafnan launalaus leyfi en veita viðkomandi starfsmanni leyfi undan vinnuskyldum sínum. Þessi leyfi eru ekki bundin í lög eða kjarasamning og eru því valkvæð af hálfu verkstjórnanda. Almennt er mælt með því að verkstjórnendur reyni að koma til móts við aðstoðarfólk sitt varðandi sínar þarfir um leyfi frá störfum.

Leyfi af þessu tagi geta átt við um:

Námsleyfi – Verkstjórnandi getur veitt aðstoðarfólki sínu leyfi frá störfum til að1 sinna námi eða sækja námskeið.

Leyfi til að hugsa um ættingja – Verkstjórnandi getur veitt aðstoðarfólki sínu leyfi frá störfum til að sinna veikum ættingja eða vini.

Leyfi af fjölskylduástæðum – Verkstjórnandi getur veitt aðstoðarfólki sínu leyfi frá störfum til að vera til staðar fyrir fjölskyldumeðlim vegna slyss eða veikinda þar sem nærvera nákomins einstaklings er nauðsynleg.

Ekki er æskilegt að veita leyfi frá störfum þegar aðstoðarfólk vill prófa aðra vinnu eða þegar aðstoðarfólk vill vera lengur í orlofi en það á rétt á.


Fæðingarorlof 


Hver eiga rétt á fæðingarorlofi? 


Allir verðandi foreldrar á vinnumarkaði eiga rétt á að taka orlof vegna fæðingar barns, svokallað fæðingarorlof. Þessi réttur á einnig við um foreldra sem ættleiða barn eða taka barn í varanlegt fóstur. Báðir foreldrar eiga rétt á fjórum mánuðum hvort um sig og síðan tveimur mánuðum til viðbótar sem annað foreldrið getur tekið í heild eða foreldrar skipt með sér.

Almennt þá byrjar rétturinn við fæðingu barns, en þó má hefja töku fæðingarorlofs allt að einum mánuði fyrir áætlaðan fæðingardag.

Fæðingarorlof tilkynnt


Aðstoðarfólk sem á von á barni tilkynnir það til verkstjórnanda síns og NPA miðstöðvarinnar, í síðasta lagi átta vikum fyrir áætlaðan fæðingardag barnsins. Hér er hægt að tilkynna miðstöðinni um fæðingarorlof og nálgast frekari upplýsingar. Aðstoðarfólk verður einnig að fylla út sérstaka tilkynningu um fæðingarorlof í gegnum island.is, en formið má nálgast hér. Formið er einnig að finna á svæði Fæðingarorlofssjóðs á heimasíðu Vinnumálastofnunar. NPA  miðstöðin þarf einnig að undirrita tilkynninguna ásamt vottorði vegna umsóknar um greiðslur úr fæðingarorlofssjóði.

Tilhögun á fæðingarorlofi


Öll sem taka fæðingarorlof eiga rétt á að taka það í heilu lagi eða skipta því upp á milli tímabila. Einnig er leyfilegt að dreifa fæðingarorlofi yfir lengri tíma. Að sama leiti er leyfilegt að færa til vikur í fæðingarorlofi. Báðir foreldrar fá 6 mánuði hvort, en leyfilegt er fyrir foreldri sem fæðir ekki barnið að framselja allt að 6 vikur áfram til fæðingarforeldris.

Fæðingarorlofsréttur er verndaður með lögum


Aðstoðarfólk sem hefur tilkynnt um töku fæðingarorlofs nýtur mjög sterkrar atvinnuverndar. Verkstjórnandi getur ekki sagt upp aðstoðarfólki í fæðingarorlofi eða vegna tilkynningu þeirra um töku fæðingarorlofs. Verkstjórnandi getur ekki breytt skyldum aðstoðarfólks í fæðingarorlofi án samninga við viðkomandi einstakling. Það er bannað með lögum að mismuna starfsfólki í fæðingarorlofi. Fæðingarorlof má ekki leiða til lakari launa eða lakari vinnuaðstæðna en viðkomandi hafði áður en hann tilkynnti um töku fæðingarorlofs. Æskilegt að verkstjórnandi hafi samband við aðstoðarfólk í fæðingarorlofi og segi frá almennum breytingum sem verða á starfinu eða endurskipulagningu aðstoðarinnar.

Ítarlegri upplýsingar um fæðingarorlof


Þú getur lesið meira um fæðingarorlof á vefsíðu fæðingarorlofssjóðs.

Sorgarleyfi


 Aðstoðarfólk á rétt á leyfi vegna andláts maka eða við barnsmissi sem kallast sorgarleyfi.

Sorgarleyfi er leyfi frá launuðum störfum eftir barnsmissi. Foreldri á rétt til sorgarleyfis í allt að:

  • 6 mánuði frá þeim degi sem barn yngra en 18 ára andast.
  • 6 mánuði frá þeim degi sem hjúskapur - eða sambúðarmaki andast.
  • 6 mánuði frá þeim degi er andvanafæðing á sér stað eftir 22 vikna meðgöngu.
  • 3 mánuði frá þeim degi er fósturlát á sér stað eftir 18 vikna meðgöngu.

Foreldrar sem eru ekki í vinnu eða í minna en 25% starfi geta átt rétt á sorgarstyrk.

Tilkynna þarf vinnuveitanda um fyrirhugaða töku á sorgarleyfi eins fljótt og unnt er.

Sótt er um sorgarleyfi hér.

 

Ítarlegri upplýsingar um sorgarleyfi

Hægt er að lesa meira um sorgarleyfi á vefsíðu vinnumálastofnunar

Stuðningur vegna andláts maka eða barns:

Sorgarmiðstöð sinnir fræðslu og ráðgjöf til syrgjenda og þeirra sem vinna að velferð syrgjenda.

Ljónshjarta eru samtök til stuðnings fólki sem misst hefur maka og barna sem misst hafa foreldri.



Sjálfstætt líf

Starfið

Ráðningar 

Ferðalög

Siðferðisleg álitamál

Uppsögn/ starfslok

Orlof og fæðingarorlof

Skipulag og vaktir

Hlutverk og ábyrgð

Laun aðstoðarfólks

Veikindaréttur og tryggingar

Sími: +354 567 8270
Tölvupóstur: npa@npa.is

Opnunartími: 
Mán-fim. kl. 10:00-15:00 Fös. kl. 10:00-13:00

Urðarhvarf 8A, 2. hæð, 203 Kópavogur
Skipagata 16, 2. hæð, 600 Akureyri
Kennitala: 660710-0270


  • Kökur
  • •
  • Um okkur
  • •
  • Innskráning

Fylgdu okkur

We use cookies to provide you a better user experience on this website. Cookie policy
 Only essentials I agree