Siðferðisleg álitamál
Erfitt getur verið að skilgreina hvað fellur undir siðferðisleg álitamál. Ef farið er yfir þín mörk er um siðferðislegt álitamál að ræða. Til að koma í veg fyrir óæskilegar aðstæður hefur NPA miðstöðin ritað siðasáttmála og fór sú vinna fram með mikilli samvinnu við verkstjórnendur og aðstoðarfólk.
Siðasáttmáli NPA miðstöðvarinnar nær til allra hlutaðeigandi aðila innan NPA miðstöðvarinnar, s.s. verkstjórnenda, aðstoðarverkstjórnenda, persónulegs aðstoðarfólks, stjórnar miðstöðvarinnar, starfsfólks skrifstofu og annarra er hlut eiga að starfi miðstöðvarinnar. Allir hlutaðeigandi aðilar skulu kynna sér reglur og gildi siðasáttmálans og hafa hvort tveggja ávallt að leiðarljósi.
Tilgangur og markmið siðasáttmálans er að vera öllum hlutaðeigandi aðilum, siðferðislegur stuðningur við dagleg störf og til tilvísunar við lausn siðferðislegra álitamála. Siðasáttmálanum er ekki ætlað að koma í stað almennra laga, starfslýsinga eða ráðningarsamninga. Tilgangur sáttmálans er að upplýsa hlutaðeigandi aðila um hvaða hegðunar er vænst af þeim í starfi þeirra í tengslum við NPA miðstöðina. Sáttmálanum er jafnframt ætlað að vera leiðarvísir fyrir verkstjórnendur, aðstoðarfólk og NPA miðstöðina að farsælli og öruggri framkvæmd NPA.
Ætlast er til að verkstjórnendur hafi þennan siðasáttmála að leiðarljósi þegar ráðningarsamningur er gerður við aðstoðarfólk, þannig að ráðningarsamningur og starfslýsing fari ekki gegn sáttmálanum.
Siðasáttmáli NPA miðstöðvarinnar tekur á fimm megin þáttum varðandi hlutverk verkstjórnenda og aðstoðarfólks; jafnrétti, virðing, ábyrgð, samvinna og fagmennska í starfi.
Siðasáttmála NPA miðstöðvarinnar er að finna HÉR
Öllum hlutaðeigandi aðilum sem starfa hjá eða nýta þjónustu NPA miðstöðvarinnar skal tryggt öruggt umhverfi og virðingu. Í því felst að þurfa ekki að þola einelti, áreitni eða annars konar ofbeldi í störfum sínum í tengslum við starfsemina líkt og segir til um í siðasáttmála NPA miðstöðvarinnar. Stjórn NPA miðstöðvarinnar og framkvæmdastjóri bera ábyrgð á aðgerðaáætlun og úrræðum fyrir hlutaðeigandi aðila, þ.e. verkstjórnendur, aðstoðarverkstjórnendur, aðstoðarfólk og starfsfólk skrifstofu.
Í aðgerðaáætlun NPA miðstöðvarinnar er farið yfir hlutverk málsaðila, skilgreiningar á ofbeldi, einelti, kynferðislegu áreiti og ofbeldi. Einnig er að finna upplýsingar um hvernig er hægt að tilkynna atvik til NPA miðstöðvarinnar eða lögreglu, sé atvikið þess eðlis.
Aðgerðaáætlun NPA miðstöðvarinnar er að finna HÉR
Ef þú þarft að tilkynna atvik eða brot á siðasáttmála máttu alltaf hafa samband við ráðgjafa NPA miðstöðvarinnar. Ráðgjafar eru ávallt bundnir trúnaði við viðmælendur sína. Einnig er hægt að senda inn tilkynningu nafnlaust í gegnum vefinn HÉR
