Hugmyndafræði um sjálfstætt líf
Í mjög stuttu máli gengur hugmyndafræðin um sjálfstætt líf út á að valdefla fatlað fólk þar sem valdið færist til þeirra og frá þjónustukerfinu. Það þýðir að fatlað fólk stjórni sínu eigin lífi.
Hugmyndafræðin byggist á rétti fatlaðs fólks til að lifa sjálfstæðu lífi þar sem þau hafa fulla stjórn á lífi sínu, taka eigin ákvarðanir og hafa rétt á því að búa í og taka þátt í samfélaginu án aðgreiningar. Jafnframt að fatlað fólk geti tekið, óháð eðli og alvarleika skerðingar, eigin ákvarðanir, stjórnað eigin aðstoð og mótað eigin lífsstíl.
Í kjölfar útbreiðslu hugmyndafræðinnar um sjálfstætt líf varð til nýtt þjónustuform sem kallast í daglegu tali NPA sem gerir fötluðu fólki kleift að ráða hvar það býr og með hverjum. Fatlað fólk stýrir hvernig aðstoðin er skipulögð, hvaða aðstoð er veitt, hvenær hún fer fram, hvar hún fer fram og hver veitir hana.
Markmið NPA er að fatlað fólk geti lifað sínu lífi á eigin forsendum og haft sömu möguleika og ófatlað fólk. Enn fremur að fatlað fólk geti tekið, óháð eðli og alvarleika skerðingar, eigin ákvarðanir, stjórnað eigin aðstoð og mótað eigin lífsstíl.
Með sjálfstæðu lífi fær fatlað fólk að taka ákvarðanir um eigið líf. Ákvarðanir sem virðast jafnvel lítilfjörlegar eins og klukkan hvað viðkomandi vaknar og hvað skal borða í morgunmat. Þetta hljóma ekki eins og stórar ákvarðanir, en fyrir margt fatlað fólk eru þetta ekki sjálfsagðir hlutir. Fatlað fólk er oft sett í kassa sem það passar ekkert inn í. Viðloðandi sjónarhorn er að fatlað fólk, og þá sérstaklega þau sem eru með greindar- og/eða þroskaskerðingu séu eilífðar börn sem geta ekki tekið sjálfstæðar ákvarðanir. Með NPA og hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf hendum við þessu úrelta viðhorfi út. Fatlað fólk er alls konar og því ekkert eitt sem passar fyrir þau öll, líkt og með ófatlað fólk.
H-in 5
Mikilvægt er að halda
H-unum fimm hátt á lofti. Ef eitt H týnist er þetta ekki lengur NPA. Fatlað
fólk hefur of lengi þurft að lifa við valdaníð yfirvalda og ekki fengið að vera
við stjórnvöll í eigin lífi. Eitt mikilvægasta hlutverk þitt sem
aðstoðarmanneskja er því að virða H-in fimm. Hægt er að sjá meira um
hlutverkaskiptingu NPA í kaflanum um Hlutverk og ábyrgð.
Hér sérðu Rúnar, formanninn okkar, útskýra H-in fimm.