Skip to Content
NPA miðstöðin svf.
  • NPA miðstöðin
    • Staðsetning
    • Samþykktir
    • Stjórn og starfsfólk
    • Ársskýrslur
    • Siðasáttmáli
    • Pistlar
    • Persónuverndarstefna
  • NPA
    • Hvað er NPA?
    • Hugmyndafræðin
    • Hlutverk NPA miðstöðvarinnar
    • Hlutverk og ábyrgð verkstjórnanda
    • Hlutverk aðstoðarverkstjórnanda
    • Hlutverk aðstoðarfólks
    • Skýrslur, rannsóknir og kannanir
  • Félagsfólk
    • Viltu vera með?
    • Handbók Verkstjórnenda
    • Siðasáttmáli
    • Ráðningarform
    • Ráðgjöf iðjuþjálfa
    • Tímon tímaskráning
  • Aðstoðarfólk
    • Störf í boði
    • Kjarasamningar
    • Hlutverk aðstoðarfólks
    • Hlutverk aðstoðarverkstjórnanda
    • Bakvarðarsveit
    • Siðasáttmáli
    • Fæðingarorlof
    • Launakjör Aðstoðarfólks
    • Vinnuslys
    • Handbók aðstoðarfólks
  • Viðburðir
  • 0
  • Hafðu samband
NPA miðstöðin svf.
  • 0
    • NPA miðstöðin
      • Staðsetning
      • Samþykktir
      • Stjórn og starfsfólk
      • Ársskýrslur
      • Siðasáttmáli
      • Pistlar
      • Persónuverndarstefna
    • NPA
      • Hvað er NPA?
      • Hugmyndafræðin
      • Hlutverk NPA miðstöðvarinnar
      • Hlutverk og ábyrgð verkstjórnanda
      • Hlutverk aðstoðarverkstjórnanda
      • Hlutverk aðstoðarfólks
      • Skýrslur, rannsóknir og kannanir
    • Félagsfólk
      • Viltu vera með?
      • Handbók Verkstjórnenda
      • Siðasáttmáli
      • Ráðningarform
      • Ráðgjöf iðjuþjálfa
      • Tímon tímaskráning
    • Aðstoðarfólk
      • Störf í boði
      • Kjarasamningar
      • Hlutverk aðstoðarfólks
      • Hlutverk aðstoðarverkstjórnanda
      • Bakvarðarsveit
      • Siðasáttmáli
      • Fæðingarorlof
      • Launakjör Aðstoðarfólks
      • Vinnuslys
      • Handbók aðstoðarfólks
    • Viðburðir
  • Hafðu samband

Til baka

Hlutverk og ábyrgð


Hlutverk verkstjórnandaHlutverk aðstoðarverkstjórnandaHlutverk aðstoðarfólksHlutverk umsýsluaðila

Hlutverk verkstjórnanda


Verkstjórnandinn er sá sem notar NPA og er þinn yfirmaður. Hlutverk verkstjórnanda er margþætt en er fyrst og fremst að vera manneskja sem er að lifa sínu lífi. Ofan á það leggst sú ábyrgð og hlutverk að vera yfirmaður.

Hlutverk og ábyrgð verkstjórnanda er til dæmis að:

·         Vera leiðbeinandi fyrir aðstoðarfólk og kenna því hvernig aðstoðin skuli vera framkvæmd

·         Skapa gott vinnuumhverfi fyrir aðstoðarfólk.

·         Sinna ráðningum á aðstoðarfólki.

·         Gera vinnuplan fyrir aðstoðarfólkið.

·         Gera starfslýsingu fyrir aðstoðarfólkið.

·         Tryggja aðstoðarfólk til afleysinga ef upp koma veikindi eða frí.

·         Fylgjast með tímaskráningum aðstoðarfólks.

·         Halda starfsmannafundi og viðtöl reglulega.

·         Utanumhald um önnur starfsmannamál, svo sem að þekkja gildandi kjarasamninga. 

Hlutverk aðstoðarverkstjórnanda


Sumt fólk þarf aðstoð við praktísku hliðar NPA og á þá rétt á aðstoðarverkstjórn. Hlutverk aðstoðarverkstjórnanda er fyrst og fremst að styðja sinn verkstjórnanda í því að koma vilja þeirra á framfæri og í framkvæmd. Aðstoðarverkstjórnandi tekur ekki ákvarðanir fyrir verkstjórnanda sinn og þetta er ekki sama hlutverk og t.d. deildarstjóri á stofnun gegnir.

Aðstoðarverkstjórnandi aðstoðar til dæmis verkstjórnanda sinn við gerð vaktaplana, að annast ráðningar og önnur tilfallandi starfsmannamál. Aðstoðarverkstjórnandi yfir tímaskýrslur og sendir til NPA miðstöðvar og annað í fjárhagslegri framkvæmd á NPA þjónustu síns verkstjórnanda. Öll þessi verkefni eiga ávallt að vera gerð með og í samráði við verkstjórnandann þar sem hann er yfirmaðurinn og stjórnar því hvað er gert, hvar og hvenær, hver veitir aðstoðina og hvernig hún er veitt. Aðstoðarverkstjórnandinn sinnir mikið til tölvuvinnunni sem fylgir NPA samningum og er það enn og aftur gert í samráði við verkstjórnendann. Aðstoðarverkstjórnandi þarf því að huga vel að því að taka ekki völdin af verkstjórnandanum, heldur valdefla hann í ákvarðanatöku þar sem allar ákvarðanir eru ennþá hans.

Almennt er ætlast til að starf aðstoðarverkstjórnanda sé unnið í samvinnu við verkstjórnanda og að verkstjórnandi sé með í flestum verkefnum. 

Veikindi skal almennt tilkynna til aðstoðarverkstjórnanda nema annað sé tekið fram. Gott er að ræða þetta við þinn verkstjórnanda og aðstoðarverkstjórnanda.  



Hlutverk aðstoðarfólks


Aðstoðarfólk gegnir mikilvægu hlutverki í lífi NPA verkstjórnandans. Með því að hafa aðstoðafólk fá verkstjórnendur tækifæri til að lifa sjálfstæðu lífi. Aðstoðarfólk verður framlenging af sínum verkstjórnanda og er hlutverk þitt því að aðstoða verkstjórnandann við þær athafnir sem hann/hún/hán getur ekki framkvæmt án aðstoðar vegna fötlunar sinnar.

Oftast er ætlast til þess að aðstoðarfólk sé frekar hlutlaust í starfi sínu og hafi sem minnst áhrif á ákvarðanatöku verkstjórnandans. Einnig getur verið mikilvægt fyrir aðstoðarfólk að láta lítið fyrir sér fara þegar það á við svo sem á fundum og í fjölskylduboðum. Mjög mikilvægt er fyrir aðstoðarfólk að átta sig á því að krafan um þagmælsku/trúnað er mjög sterk.

Starf aðstoðarfólks getur meðal annars falið í sér: 

·         Aðstoð við þátttöku í félagslífi, tómstundum og íþróttum.

·         Aðstoð við þrif, viðhald og umhirðu (t.d. heimilis, bíls, hjálpartækja).

·         Aðstoð við að elda eða baka.

·         Aðstoð við að borða, drekka, taka lyf.

·         Aðstoð við nám og/eða vinnu.

·         Aðstoð við kaup í matinn, föt, tæki og tól o.fl.

·         Aðstoð við athafnir daglegs lífs (t.d. klæða/hátta, salerni, bað/sturtu).

·         Aðstoð við persónulega umhirðu (bursta tennur/hár, snyrtingu og förðun, o.fl.).

·         Aðstoð við hreyfingu og heilsurækt.

·         Aðstoð við undirbúning viðburða (t.d. hátíða, afmælis, tilfallandi teita).

·         Aðstoð við umhirðu gæludýra.

·         Aðstoð við foreldrahlutverkið, fjölskyldulífið.

·         Aðstoð við styttri eða lengri ferðir/ferðalög.

·         Aðstoð við að opna og lesa póst, dagblöð, bækur o.fl.

·         Aðstoð við akstur.

·         Aðstoð við snjómokstur og umhirðu garðs (vökva blóm, klippa runna, slá gras og fleira).

·         Aðstoð við hvað annað sem verkstjórnandi tekur sér fyrir hendur og þarf aðstoð við.  

Hlutverk aðstoðarfólks er því að gera eingöngu að aðeins það sem verkstjórnandi óskar eftir. Aðstoðarfólk vinnur fyrir sinn verkstjórnanda en ekki fyrir aðra fjölskyldumeðlimi, samstarfsfólk eða aðra. 


Hlutverk umsýsluaðila


 Þinn verkstjórnandi hefur kosið að vera með umsýslu á sínum samningi hjá NPA miðstöðinni sem er því orðinn umsýsluaðili á NPA eða beingreiðslusamningum hans. NPA miðstöðin er jafnframt sameignarfélag fatlaðs fólks og starfar án ágóðasjónarmiða. NPA miðstöðin gætir hagsmuna verkstjórnenda, aðstoðarfólks og fatlaðs fólks á öllu Íslandi með því að berjast fyrir rétti fólks til viðeigandi þjónustu.

Hlutverk umsýsluaðila á við NPA miðstöðina er að veita vinnuveitendaábyrgð sem er ástæða þess að ráðgjafi hjá NPA miðstöðinni kvittar einnig undir þinn ráðningarsamning.

Allt aðstoðarfólk má leita til NPA miðstöðvarinnar vegna spurninga eða ágreinings sem getur komið upp í starfi. Ráðgjafar NPA miðstöðvarinnar eru alltaf bundnir þagnarskyldu.

Hlutverk NPA miðstöðvarinnar:

·         Halda úti jafningjaráðgjöf meðal félagsmanna.

·         Bjóða verkstjórnendum upp á námskeið og þjálfun í hlutverki sínu.

·         Bjóða upp á námskeið fyrir aðstoðarfólk.

·         Veita ráðgjöf til fatlaðs fólks og aðstandenda.

·         Annast faglega umsýslu með NPA samningum, þ.m.t. greiða aðstoðarfólki laun og sjá um launatengd mál.

·         NPA miðstöðin hefur gert sérkjarasamning um NPA aðstoðarfólk við Eflingu og Starfsgreinasambandið, sem hún viðheldur.

·         Annast samskipti og samstarf við stéttarfélög, m.a. við gerð kjarasamninga og í ágreiningsmálum er varða NPA.

·         Halda verkstjórnendum upplýstum um notkun sína og stöðu á NPA samningnum.

·         Halda sveitarfélögum upplýstum um stöðu þeirra NPA samninga sem miðstöðin annast umsýslu með.

·         Sinna pólitískri baráttu gagnvart Alþingi og stjórnvöldum ríkis og sveitarfélaga.

·         Efla þekkingu á NPA og hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf innan stjórnsýslunnar og í samfélaginu öllu.




Sjálfstætt líf

Starfið

Ráðningar 

Ferðalög

Siðferðisleg álitamál

Uppsögn/ starfslok

Orlof og fæðingarorlof

Skipulag og vaktir

Hlutverk og ábyrgð

Laun aðstoðarfólks

Veikindaréttur og tryggingar

Sími: +354 567 8270
Tölvupóstur: npa@npa.is

Opnunartími: 
Mán-fim. kl. 10:00-15:00 Fös. kl. 10:00-13:00

Urðarhvarf 8A, 2. hæð, 203 Kópavogur
Skipagata 16, 2. hæð, 600 Akureyri
Kennitala: 660710-0270


  • Kökur
  • •
  • Um okkur
  • •
  • Innskráning

Fylgdu okkur

We use cookies to provide you a better user experience on this website. Cookie policy
 Only essentials I agree