Skip to Content
NPA miðstöðin svf.
  • NPA miðstöðin
    • Staðsetning
    • Samþykktir
    • Stjórn og starfsfólk
    • Ársskýrslur
    • Siðasáttmáli
    • Pistlar
    • Persónuverndarstefna
  • NPA
    • Hvað er NPA?
    • Hugmyndafræðin
    • Hlutverk NPA miðstöðvarinnar
    • Hlutverk og ábyrgð verkstjórnanda
    • Hlutverk aðstoðarverkstjórnanda
    • Hlutverk aðstoðarfólks
    • Skýrslur, rannsóknir og kannanir
  • Félagsfólk
    • Viltu vera með?
    • Handbók Verkstjórnenda
    • Siðasáttmáli
    • Ráðningarform
    • Ráðgjöf iðjuþjálfa
    • Tímon tímaskráning
  • Aðstoðarfólk
    • Störf í boði
    • Kjarasamningar
    • Hlutverk aðstoðarfólks
    • Hlutverk aðstoðarverkstjórnanda
    • Bakvarðarsveit
    • Siðasáttmáli
    • Fæðingarorlof
    • Launakjör Aðstoðarfólks
    • Vinnuslys
    • Handbók aðstoðarfólks
  • Viðburðir
  • 0
  • Hafðu samband
NPA miðstöðin svf.
  • 0
    • NPA miðstöðin
      • Staðsetning
      • Samþykktir
      • Stjórn og starfsfólk
      • Ársskýrslur
      • Siðasáttmáli
      • Pistlar
      • Persónuverndarstefna
    • NPA
      • Hvað er NPA?
      • Hugmyndafræðin
      • Hlutverk NPA miðstöðvarinnar
      • Hlutverk og ábyrgð verkstjórnanda
      • Hlutverk aðstoðarverkstjórnanda
      • Hlutverk aðstoðarfólks
      • Skýrslur, rannsóknir og kannanir
    • Félagsfólk
      • Viltu vera með?
      • Handbók Verkstjórnenda
      • Siðasáttmáli
      • Ráðningarform
      • Ráðgjöf iðjuþjálfa
      • Tímon tímaskráning
    • Aðstoðarfólk
      • Störf í boði
      • Kjarasamningar
      • Hlutverk aðstoðarfólks
      • Hlutverk aðstoðarverkstjórnanda
      • Bakvarðarsveit
      • Siðasáttmáli
      • Fæðingarorlof
      • Launakjör Aðstoðarfólks
      • Vinnuslys
      • Handbók aðstoðarfólks
    • Viðburðir
  • Hafðu samband

Til baka

Ferðalög

Þegar verkstjórnandi er að fara í ferðalag þarf að undirbúa vel tímann fyrir ferðalagið, á meðan á því stendur og eftir það. 

Eru því margir hlutir sem þarf að huga vel að og skipuleggja.


Hversu langt er ferðalagið?Hver fer með í ferðalagið? Verkstjórnandinn minn er að fara erlendis en ég fer ekki með, hvað verður um vaktirnar mínar? KostnaðurGistiaðstaðaTryggingar, vegabréfsáritanir og bólusetningar

Hversu langt er ferðalagið?


Áður en farið er í ferðalag þarf að gera skriflegan samning um ferðatilhögun. Þetta verndar bæði verkstjórnanda og aðstoðarfólk fyrir óvæntum uppákomum. Skýrt þarf að vera hversu langt ferðalagið er, hvernig vaktafyrirkomulag verður á ferðinni og hvenær hvíldartími er.  

Hver fer með í ferðalagið? 


 Það er verkstjórnandinn sem ræður hvaða aðstoðarfólk fer með í ferðalagið. Hægt er að taka þau með sem vinna daglegar vaktir eða fólk sem vinnur eingöngu í ferðalögum. Það er ekkert sem segir að tiltekið aðstoðarfólk eigi meiri rétt á að fylgja verkstjórnanda sínum á ferðalögum en annað. 

Lög og kjarasamningsbundin réttindi gilda líka á ferðalagi og þarf verkstjórnandi þinn að virða þinn hvíldartíma.


Verkstjórnandinn minn er að fara erlendis en ég fer ekki með, hvað verður um vaktirnar mínar? 


 Verkstjórnanda ber skylda til að uppfylla þitt ráðningarhlutfall ef þú ert í fastri prósentu. Hægt er að skipuleggja fleiri vaktir fyrir þig annað hvort fyrir eða eftir ferðina til að ná upp í ráðningarhlutfallið. Slíkar breytingar verða þó að vera innan þess tímabils sem leyfilegt er að sveigja vaktir milli launatímabila. Það er miðað við meðaltal yfir þriggja mánaða tímabil.  Ef verkstjórnandi nær ekki að skipuleggja vaktir í samræmi við ráðningarsamning verður að greiða laun í samræmi við ráðningarhlutfall.

Dæmi um breytingar á vaktaplani þegar verkstjórnandi er að fara í ferðalag er að hann velji að það aðstoðarfólk sem fer með í ferðina felli niður sínar vaktir fyrir og eftir ferðina. Það aðstoðarfólk sem fer ekki með í ferðina vinnur þá vaktir í staðinn fyrir þær sem hefðu átt að vera samkvæmt áætlun á meðan á ferðinni stendur.

Ef verkstjórnandi verður í burtu í langan tíma gæti verið nauðsynlegt að segja aðstoðarfólki upp. Þetta er þó undantekning og ekki er hvatt til þess að leysa aðstoðarfólk frá störfum.

Af öllu þessu má ráða að gott er að byrja undirbúning og skipulagningu lengri ferðalaga með góðum fyrirfara.

Kostnaður


Verkstjórnandi greiðir fyrir fargjöld og farangur, ásamt bólusetningum og vegabréfsávísunum ef til þarf.

Verkstjórnandi getur líka greitt fyrir gistingu, nema ef aðstoðarfólk fær dagpeninga með gistináttataxta. Verkstjórnanda er heimilt að velja annan gististað en sinn fyrir aðstoðarfólk sitt. Það fer alveg eftir þörfum verkstjórnandans og getur verið góð leið til að fá hlé frá hvort öðru.

Á ferðalagi innan Evrópu er mikilvægt að vera með evrópska sjúkratryggingarkortið.  

Gistiaðstaða


Verkstjórnanda ber að greiða fyrir gistiaðstöðu þína.

Aðstoðarfólk á rétt á dagpeningum á ferðalagi. Verkstjónanda er heimilit að semja við aðstoðarfólk sitt um að greiða fyrir uppihald og gistingu frekar en að greiða dagpeninga. Fái aðstoðarfólk dagpeninga ber því að nýta það fyrir mat og öðrum útlögðum kostnaði á ferðalaginu.

Sé verkstjórnandi að útvega gististað er ágætt að óska eftir myndum svo ekki komi upp óvæntar eða óþægilegar aðstæður. Almennt er mælt með að aðstoðarfólk fái sérherbergi og helst einkasnyrtingu. Aðstæður geta þó verið þannig að ekki er hægt að verða við því.  

Tryggingar, vegabréfsáritanir og bólusetningar


Athugið alltaf hvaða tryggingar þú ert með og hvaða tjóni þær standa undir. Athuga þarf hvort að tryggingar, t.d. kortatryggingar, dekki þig ef þú bókar ekki fargjaldið.

Oft geta komið upp óvænt atvik og ófyrirséðar aðstæður sem setja allar ferðaáætlanir verkstjórnenda og aðstoðarfólks í hættu. Góð regla er því að greiða aukalega fyrir það að geta afbókað ferðina. Annars er hætta á að ekki sé hægt að fá endurgreitt ef ekki var komist í ferðina af einhverjum ástæðum.

Ef ferðalagið er í Evrópu verður að tryggja að verkstjórnandi og aðstoðarfólkið hans séu með evrópska sjúkratryggingakortið. 
Þú getur pantað það frá Sjúkratryggingum Íslands, www.sjukra.is. Ef þú veikist í ferðinni færðu ókeypis læknishjálp ef þú sýnir kortið.

Athugaðu hvort þú sért með gilt vegabréf sem sex mánuði fram yfir ferðina ef þú ferð til útlanda. Sum lönd gera kröfu um slíkan gildistíma. 




Sjálfstætt líf

Starfið

Ráðningar 

Ferðalög

Siðferðisleg álitamál

Uppsögn/ starfslok

Orlof og fæðingarorlof

Skipulag og vaktir

Hlutverk og ábyrgð

Laun aðstoðarfólks

Veikindaréttur og tryggingar

Sími: +354 567 8270
Tölvupóstur: npa@npa.is

Opnunartími: 
Mán-fim. kl. 10:00-15:00 Fös. kl. 10:00-13:00

Urðarhvarf 8A, 2. hæð, 203 Kópavogur
Skipagata 16, 2. hæð, 600 Akureyri
Kennitala: 660710-0270


  • Kökur
  • •
  • Um okkur
  • •
  • Innskráning

Fylgdu okkur

We use cookies to provide you a better user experience on this website. Cookie policy
 Only essentials I agree