Skip to Content
NPA miðstöðin svf.
  • NPA miðstöðin
    • Staðsetning
    • Samþykktir
    • Stjórn og starfsfólk
    • Ársskýrslur
    • Siðasáttmáli
    • Pistlar
    • Persónuverndarstefna
  • NPA
    • Hvað er NPA?
    • Hugmyndafræðin
    • Hlutverk NPA miðstöðvarinnar
    • Hlutverk og ábyrgð verkstjórnanda
    • Hlutverk aðstoðarverkstjórnanda
    • Hlutverk aðstoðarfólks
    • Skýrslur, rannsóknir og kannanir
  • Félagsfólk
    • Viltu vera með?
    • Handbók Verkstjórnenda
    • Siðasáttmáli
    • Ráðningarform
    • Ráðgjöf iðjuþjálfa
    • Tímon tímaskráning
  • Aðstoðarfólk
    • Störf í boði
    • Kjarasamningar
    • Hlutverk aðstoðarfólks
    • Hlutverk aðstoðarverkstjórnanda
    • Bakvarðarsveit
    • Siðasáttmáli
    • Fæðingarorlof
    • Launakjör Aðstoðarfólks
    • Vinnuslys
    • Handbók aðstoðarfólks
  • Viðburðir
  • 0
  • Hafðu samband
NPA miðstöðin svf.
  • 0
    • NPA miðstöðin
      • Staðsetning
      • Samþykktir
      • Stjórn og starfsfólk
      • Ársskýrslur
      • Siðasáttmáli
      • Pistlar
      • Persónuverndarstefna
    • NPA
      • Hvað er NPA?
      • Hugmyndafræðin
      • Hlutverk NPA miðstöðvarinnar
      • Hlutverk og ábyrgð verkstjórnanda
      • Hlutverk aðstoðarverkstjórnanda
      • Hlutverk aðstoðarfólks
      • Skýrslur, rannsóknir og kannanir
    • Félagsfólk
      • Viltu vera með?
      • Handbók Verkstjórnenda
      • Siðasáttmáli
      • Ráðningarform
      • Ráðgjöf iðjuþjálfa
      • Tímon tímaskráning
    • Aðstoðarfólk
      • Störf í boði
      • Kjarasamningar
      • Hlutverk aðstoðarfólks
      • Hlutverk aðstoðarverkstjórnanda
      • Bakvarðarsveit
      • Siðasáttmáli
      • Fæðingarorlof
      • Launakjör Aðstoðarfólks
      • Vinnuslys
      • Handbók aðstoðarfólks
    • Viðburðir
  • Hafðu samband

Til baka

Starf aðstoðarfólks



Að byrja í nýju starfi - við hverju má búast? Starf aðstoðarfólksAð vinna á heimili fólksStarfsmannaaðstaðanHeilsa og öryggi á vinnustaðVerkstjórnandi sem foreldriAð draga sig í hléTaka þátt í því að skapa gott starfsumhverfiÓlíkar vinnuaðstæðurSkemmtanir og djammVeislur, kaffiboð og matarboðVinaboðKaffihús og veitingastaðirLæknisheimsóknir

Að byrja í nýju starfi - við hverju má búast? 


Að mörgu er að hyggja þegar þú hefur störf sem aðstoðarmanneskja. Gott er að biðja verkstjórnanda um starfslýsingu eða leiðbeiningar sem útskýra við hverju er búist af þér, við hvað skal aðstoða og hvert þitt hlutverk er. Sumir verkstjórnendur eru með tjékklista fyrir hvern dag eða fyrir þau atriði sem þau þurfa aðstoð við, t.d. aðstoð við böðun, matseld eða að keyra bíl. 

Þó að þú hafir áður starfað sem aðstoðarmanneskja hjá einum verkstjórnanda er ekki víst að nýr verkstjórnandi vilji eða þurfi sömu aðstoð, eða vilji að aðstoð við sama hlutinn sé framkvæmd á sama hátt.  

Starf aðstoðarfólks


Starf þitt sem aðstoðarmanneskja er mjög persónulegt og er því mikilvægt að taka gagnrýni ekki persónulega, heldur sem leiðarvísi um hvernig verkstjórnendur vilja að sinni aðstoð sé háttað. Besta leiðin er nefnilega ekki alltaf rétta leiðin. Við erum öll misjöfn og viljum hafa hlutina á misjafnan hátt. Þetta er þeirra líf og heimili og þau því með sínar eigin leiðir til þess að gera hlutina og mikilvægt að sýna því skilning. Það er engin þörf á að vera sammála heldur einungis aðstoða einstaklinginn hvernig sem hann vill og hvenær sem hann vill.  



Að vinna á heimili fólks


  Starf aðstoðarfólks fer að miklu leyti fram á heimilum fólks og ber þér því að sýna öllum hlutum virðingu.

Mikilvægt er að ræða við þinn verkstjórnanda um hvert hlutverk þitt sé á heimilinu, t.d. hvort þú eigir að hafa frumkvæði á að sinna léttum heimilisverkum eins og t.d. að ganga frá strax eftir máltíðir eða hvort þú eigir að bíða eftir að verkstjórnandi þinn biðji um að gengið sé frá eftir matinn. Hjá sumum verkstjórnendum er ákveðin stundatafla um heimilisverk sem þarf að sinna (ryksuga á þriðjudögum, þrífa bað á fimmtudögum o.s.frv.) á meðan aðrir vilja að aðstoðarfólk sitt gangi beint til verka eða eftir óskum þeirra hverju sinni.

Einnig er gott að gera sér grein fyrir eigin styrkleikum, eða veikleikum, og nefna það við verkstjórnandann.




Starfsmannaaðstaðan


Ekki geta allir verkstjórnendur boðið upp á sérherbergi fyrir aðstoðarfólk sitt. Afmarkað svæði skal samt vera fyrir þig til að draga þig í hlé. Verkstjórnendur fá fjármagn til að útbúa aðstöðu fyrir aðstoðarfólk sitt og má því ræða um búnað sem gæti verið nytsamlegur í starfsmannaaðstöðu eins og t.d. örbylgjuofn, ísskápur eða bakvaktarsími.  

Þau sem eru með hvíldarvaktir verða að vera með sérherbergi með rúmi fyrir aðstoðarfólk sitt þar sem sæng, koddi og hrein sængurföt eru til staðar. Slíkt herbergi má ekki vera notað fyrir neitt annað en hvíld þína á meðan næturvaktin stendur yfir. Sniðugt er að vera með körfu eða læsta skápa fyrir persónulegar eigur aðstoðarfólks. Gott er að ræða við þinn verkstjórnanda ef það er eitthvað sem vantar eða mætti vera öðruvísi í herbergi aðstoðarfólks. Einnig er hægt að setja upp reglur fyrir hvíldarherbergið sem eiga þá við um þig og annað aðstoðarfólk þíns verkstjórnanda, t.d. varðandi rúmföt, rusl, þrif og annað.



Heilsa og öryggi á vinnustað


Verkstjórnendur gera öryggis- og áhættumat í sameiningu með ráðgjafa miðstöðvarinnar. Matið er yfirfarið reglulega til að tryggja öryggi bæði verkstjórnenda og aðstoðarfólks. Ef þú tekur eftir einhverju sem betur mætti fara, t.d. hvort það sé léleg trappa sem er notuð til að skipta t.d. um ljósaperur, vantar sjúkrakassa á heimilinu eða annan öryggisbúnað er um að gera að láta verkstjórnanda þinn vita strax svo hægt sé að laga það.



Verkstjórnandi sem foreldri


 Þú sem aðstoðarmanneskja ert ekki staðgengill foreldra, hins vegar gerir þú fötluðum foreldrum/verkstjórnendum kleift að leyfa börnum sínum að upplifa margt sem þau annars gætu ekki.

Sem dæmi ef barn dettur og meiðir sig þá er það ekki þú sem huggar barnið, heldur þarft þú að aðstoða foreldrið/verkstjórnendann að geta huggað barnið sitt, t.d. með því að lyfta barninu upp í fang foreldris síns. Mismunandi er á milli einstaklinga hvort að þú ættir að fara strax að sækja sjúkrakassa eða hvort verkstjórnandinn vilji segja til um að hvort það þurfi.

Einnig er það ekki þitt að sinna uppeldishlutverki foreldris og því er það ekki þitt að ákveða hvað er æskileg hegðun eða æskileg uppeldisaðferð. Það breytir því ekki hvort þú sért sammála eða ósammála uppeldisaðferð verkstjórnandans, þú gerir ávallt það sem verkstjórnandinn biður þig um og án þess að tjá þína skoðun.



Að draga sig í hlé


 Mikilvægt er að geta lesið í aðstæður og vita hvenær eigi að draga sig í hlé, t.d. þegar verkstjórnandi þinn er með félagsskap eða vill fá næði. Ágætt er að reyna að vera ávallt í kallfæri eða sjónlínu svo að ef aðstoð þinnar er óskað þurfi ekki að leita þig uppi. Ef aðstæður eru þannig að þú ert í öðru herbergi er gott að vera með símann við höndina svo verkstjórnandi geti sent þér skilaboð. 

Verkstjórnandi er ekki alltaf að leitast eftir félagsskap frá aðstoðarfólki sínu og vill ekki þurfa að vera gestgjafi fyrir þig. Því er nauðsynlegt að átta sig á því hvenær er rétt að draga sig í hlé. Stundum segir verkstjórnandinn þér að þú getir farið afsíðis en öðrum finnst gott að þú getir lesið í aðstæður. Það er því mikilvægt að vita hvernig verkstjórnandinn þinn vill hátta þessu og því tilvalið að spyrja hann út í það svo enginn vafi sé um þessi mál.


Taka þátt í því að skapa gott starfsumhverfi


 Mikilvægt er að aðstoðarfólk taki þátt í því að skapa gott starfsumhverfi. Það getur þú til dæmis gert með því að gera það sem verkstjórnandi vill með jákvæðu viðmóti, ganga snyrtilega um aðstoðarmannarými og heimili verkstjórnanda. Að sama leiti er mikilvægt að koma ávallt fram af virðingu við allt heimilisfólk og ekki skipta þér af því sem kemur þér ekki við.

Ólíkar vinnuaðstæður


Starf þitt sem aðstoðarmanneskja fer fram þar sem verkstjórnandi þinn er hverju sinni. Það getur verið t.d. á heimili verkstjórnanda, vinnustað, kaffihúsi, útilegu, sundi eða erlendis. Það er því engin hefðbundin starfsstöð, en það þarf þó alltaf að vera upphafs- og endapunktur fyrir hverja vakt.

Frekari upplýsingar um NPA á ferðalagi má finna í kaflanum Ferðalög

Fatlað fólk vill fara og gera allskonar og er það ekki þitt hlutverk sem aðstoðarmanneskja að stjórna því hvað fólk getur eða getur ekki gert, heldur er hlutverk þitt að aðstoða verkstjórnanda í að lifa sínu sjálfstæða lífi, hvað sem það felur í sér.



Skemmtanir og djamm


Verkstjórnandi þinn gæti viljað skemmta sér og þá fer hlutverk þitt eftir því hvað hann vill hverju sinni. Þú gætir ýmist farið með og aðstoðað eftir þörfum eða orðið eftir. Ef þú verður eftir þá gæti verið að þú yrðir sett/ur á svokallaða bakvakt, þar sem þú ert við símann og þarft að vera viðbúið/n/nn að mæta aftur á vakt þegar verkstjórnandinn hringir. Allt fer þetta eftir því hvað verkstjórnandinn vill hverju sinni og því mikilvægt að spyrja hann áður en fyrirhuguð skemmtun á sér stað, hvert þitt hlutverk skal vera.  



Veislur, kaffiboð og matarboð


Þegar verkstjórnandi þinn fær boð í veislu eða ákveður að halda matarboð þá er þér ekki beint boðið. Þú sem aðstoðarmanneskja á vakt fylgir þínum verkstjórnanda og aðstoðar t.d. í aðdraganda boðsins, aðstoðar jafnvel í boðinu en þér er samt ekki boðið. Það er ekkert persónulegt gagnvart þér. 

Þitt hlutverk í slíkum samkomum þarf að vera skýrt af hálfu verkstjórnanda þíns, þú gætir átt að aðstoða verkstjórnanda við að matast og þarft því að sitja til borðs með öðrum gestum. Þrátt fyrir það ert þú ekki gestur.  



Vinaboð


Verkstjórnandi þinn gæti viljað bjóða vinum sínum í heimsókn eða kíkja í heimsókn til vina sinna. Í þeim tilvikum er ekkert eitt sem á við sem þú átt að gera, heldur eins og alltaf þarftu að fylgja því sem verkstjórnandinn kýs og biður þig um hverju sinni. Það gæti því verið þitt hlutverk að aðstoða við undirbúning, vera til staðar og aðstoða mögulega með mat eða jafnvel fara afsíðis svo verkstjórnandinn geti notið einn með vinum sínum.  



Kaffihús og veitingastaðir


 Líkt og hjá öllum öðrum getur leið verkstjórnanda stundum legið á kaffihús eða veitingastaði. Misjafnt er hvort verkstjórnandi sé að fara einsamall, með vinum, maka eða fjölskyldu. Með hverjum verkstjórnandinn er að fara getur haft áhrif á hvert þitt hlutverk er. Það er því mikilvægt að vera meðvituð/að/aður um hvað verkstjórnandinn vill að þitt hlutverk sé hverju sinni.


Læknisheimsóknir


 Læknisheimsóknir eru einnig hluti af okkar venjulega lífi þar sem af og til er þörf á að kíkja þangað. Fer það því alfarið eftir því hver ástæða læknisheimsóknarinnar er og hvað verkstjórnandinn vill, hvert þitt hlutverk er. Algengt er að þú farir með og aðstoðir verkstjórnandann en er það þó ekki algilt. Því eins og alltaf, er mikilvægt að vita hvað verkstjórnandinn vill frá þér hverju sinni.




Sjálfstætt líf

Starfið

Ráðningar 

Ferðalög

Siðferðisleg álitamál

Uppsögn/ starfslok

Orlof og fæðingarorlof

Skipulag og vaktir

Hlutverk og ábyrgð

Laun aðstoðarfólks

Veikindaréttur og tryggingar


Sími: +354 567 8270
Tölvupóstur: npa@npa.is

Opnunartími: 
Mán-fim. kl. 10:00-15:00 Fös. kl. 10:00-13:00

Urðarhvarf 8A, 2. hæð, 203 Kópavogur
Skipagata 16, 2. hæð, 600 Akureyri
Kennitala: 660710-0270


  • Kökur
  • •
  • Um okkur
  • •
  • Innskráning

Fylgdu okkur

We use cookies to provide you a better user experience on this website. Cookie policy
 Only essentials I agree