Skip to Content
NPA miðstöðin svf.
  • NPA miðstöðin
    • Staðsetning
    • Samþykktir
    • Stjórn og starfsfólk
    • Ársskýrslur
    • Siðasáttmáli
    • Pistlar
    • Persónuverndarstefna
  • NPA
    • Hvað er NPA?
    • Hugmyndafræðin
    • Hlutverk NPA miðstöðvarinnar
    • Hlutverk og ábyrgð verkstjórnanda
    • Hlutverk aðstoðarverkstjórnanda
    • Hlutverk aðstoðarfólks
    • Skýrslur, rannsóknir og kannanir
  • Félagsfólk
    • Viltu vera með?
    • Handbók Verkstjórnenda
    • Siðasáttmáli
    • Ráðningarform
    • Ráðgjöf iðjuþjálfa
    • Tímon tímaskráning
  • Aðstoðarfólk
    • Störf í boði
    • Kjarasamningar
    • Hlutverk aðstoðarfólks
    • Hlutverk aðstoðarverkstjórnanda
    • Bakvarðarsveit
    • Siðasáttmáli
    • Fæðingarorlof
    • Launakjör Aðstoðarfólks
    • Vinnuslys
    • Handbók aðstoðarfólks
  • Viðburðir
  • 0
  • Hafðu samband
NPA miðstöðin svf.
  • 0
    • NPA miðstöðin
      • Staðsetning
      • Samþykktir
      • Stjórn og starfsfólk
      • Ársskýrslur
      • Siðasáttmáli
      • Pistlar
      • Persónuverndarstefna
    • NPA
      • Hvað er NPA?
      • Hugmyndafræðin
      • Hlutverk NPA miðstöðvarinnar
      • Hlutverk og ábyrgð verkstjórnanda
      • Hlutverk aðstoðarverkstjórnanda
      • Hlutverk aðstoðarfólks
      • Skýrslur, rannsóknir og kannanir
    • Félagsfólk
      • Viltu vera með?
      • Handbók Verkstjórnenda
      • Siðasáttmáli
      • Ráðningarform
      • Ráðgjöf iðjuþjálfa
      • Tímon tímaskráning
    • Aðstoðarfólk
      • Störf í boði
      • Kjarasamningar
      • Hlutverk aðstoðarfólks
      • Hlutverk aðstoðarverkstjórnanda
      • Bakvarðarsveit
      • Siðasáttmáli
      • Fæðingarorlof
      • Launakjör Aðstoðarfólks
      • Vinnuslys
      • Handbók aðstoðarfólks
    • Viðburðir
  • Hafðu samband

Til baka

Ráðningar aðstoðarfólks

Að mörgu er að huga þegar þú byrjar sem aðstoðarmanneskja hjá NPA verkstjórnanda. 
Hér verður fjallað um þau skjöl sem þú þarft að undirrita og þær upplýsingar sem verkstjórnandi skal veita þér við ráðningu.


RáðningarsamningurAð skrifa undir ráðningarsamningTrúnaðaryfirlýsingAð starfa hjá fleiri en einum verkstjórnanda

Ráðningarsamningur

Ráðningarsamningur er formlegt samkomulag milli aðstoðarfólks, verkstjórnanda og NPA miðstöðvarinnar sem launagreiðenda um að ráðning þín sé staðfest og að skuldbinding allra aðila varðandi sínar skyldur samkvæmt lögum verði fylgt eftir svo lengi sem starfssambandið varir.

Þegar þú hefur störf hjá þínum verkstjórnanda er æskilegt að ráðningarsamningur sé undirritaður fyrstu dagana eða vikuna í starfi. Ekki er hægt að ganga frá launagreiðslu nema búið sé að ganga frá ráðningarsamningi. Fyllt er út ákveðið ráðningarform sem gerir ráðgjöfum NPA miðstöðvarinnar kleift að búa til ráðningarsamning og senda hann til þín og þíns verkstjórnenda til undirritunar. Ráðningarformið má finna hér


Að skrifa undir ráðningarsamning

 Við undirritun á ráðningarsamningi óskar miðstöðin eftir heimild til þess að sækja upplýsingar um sakavottorð þitt. Því þarf að skrifa undir skjal sem heimilar ráðgjöfum NPA miðstöðarinnar að sækja þær upplýsingar fyrir hönd verkstjórnandans. Sýslumaðurinn í þínu sveitarfélagi útvegar einstaklingum sakavottorð en einnig er hægt að sækja um sakavottorð rafrænt á vef Sýslumanns eða Þjónustugátt hins opinbera.

Einnig er æskilegt að verkstjórnandinn þinn fari yfir gildandi launatöflu NPA aðstoðarfólks og Eflingar stéttarfélags með þér til að þú vitir með vissu í hvaða launaflokki þú ert, hvenær þú komir til með að fara upp um launaflokk í þessu starfi og að þú gerir þér grein fyrir því hvernig launatengdar álagsgreiðslur virka almennt og sérstaklega út frá þínum persónulega vinnutíma. Ef verkstjórnandi getur ekki aðstoðað þig við það, þá getur ráðgjafi NPA miðstöðvarinnar gert það.

Þegar kemur að því að fylla út ráðningarsamninginn þarft þú að gefa upp, fullt nafn, kennitölu, heimilisfang, netfang, símanúmer, nafn verkstjórnenda og aðstoðarverkstjórnenda ef það á við. Fyrsti starfsdagur er líka skráður á samninginn. Einnig þarf að merkja við það hvort þú sért nákomin/n/ð verkstjórnenda þínum. Síðan þarftu að gefa upp hvort að þú sért á sakaskrá, reikningsnúmer og hvort þú ætlir að nýta persónuafsláttinn í þessu starfi - og ef svo er, hversu mikinn hluta hans þú vilt nýta. Ef þú vilt breyta nýtingu persónuafsláttarins eftir að ráðningarsamningur er gerður er nóg að hafa samband við ráðgjafa NPA miðstöðvarinnar sem kemur þeim upplýsingum yfir til launadeildar.

Starfshlutfall er fyllt út sem prósentuhlutfall miðað við fjölda vinnustunda á mánuði. Fullt starf eða 100% starfshlutfall er 156 vinnustundir á mánuði að meðaltali. Því er hægt að vera í einhverju ákveðnu prósentuhlutfalli eða í tímavinnu/afleysingar starfi, þar sem ekki er gerð krafa um fastar vaktir. Einnig þarf að taka fram hvort að ráðning sé ótímabundin eða tímabundin eða afleysing eftir samkomulagi. Ef ráðning er tímabundin þarf að skrá tímabilið í ráðningarsamninginn.



Trúnaðaryfirlýsing

 

Þagnarskyldan er mjög mikilvægur hluti af þínu starfi sem aðstoðarmanneskja.

Þagnarskylda í starfi er lögbundin og gildir frá fyrstu stundu þegar að starf hefst og framvegis um óákveðinn tíma. Þagnarskylda er enn í gildi þegar þú lætur af störfum hjá þínum verkstjórnanda. Til að undirstrika mikilvægi þess að aðstoðarfólk sé meðvitað um þagnarskylduna er þörf á að undirrita svokallaða trúnaðaryfirlýsingu þegar ráðningarsamningur er gerður.

Í trúnaðaryfirlýsingunni sjálfri er ítrekað að allt aðstoðarfólk verði að virða þagnarskyldu hvað varðar allt sem þú gætir heyrt eða orðið vitni af í þínu starfi sem persónuleg aðstoðarmanneskja. Þetta þýðir að þér er óheimilt að gefa upp upplýsingar um verkstjórnandann þinn og þá sem honum tengjast eða því sem þú verður vitni að í starfi, til nokkurs manns.

Það sama gildir í samskiptum við annað aðstoðarfólk. Þ.e.a.s. aðstoðarfólki er óheimilt að ræða sín á milli um verkstjórnandann eða aðra sem honum tengjast og það sem þú verður vitni að í starfi. Eingöngu verkstjórnandi getur veitt undanþágu frá þessu ef viðkomandi biður þig um að miðla vissum upplýsingum til annars aðstoðarfólks. Það sama á við þegar að aðstoðarfólk á í einhverjum samskiptum við fagfólk sem tengist verkstjórnandanum, sem og við fólk sem tengist verkstjórnanda vina- eða fjölskylduböndum.

Þagnarskyldan nær einnig til miðla s.s. hljóðupptöku eða myndefni af lífi eða umhverfi verkstjórnanda. Aðstoðarfólki er óheimilt að deila stafrænu efni sem tengist, sýnir verkstjórnandann eða umhverfi hans að nokkru leyti.  

Eina undantekningin á trúnaðarskyldu aðstoðarmanneskju er ef einhver er í bráðri hættu og aðstoðarmanneskja þarf að veita lífsnauðsynlegar upplýsingar, til dæmis ef slys verður og verkstjórnandi er meðvitundarlaus eða ófær um að tjá sig.

Starfsfólk skrifstofu NPA miðstöðvarinnar er einnig bundið trúnaði gagnvart félagsfólki og aðstoðarfólki þeirra.



Að starfa hjá fleiri en einum verkstjórnanda

Það er leyfilegt að ráða sig í starf hjá fleiri en einum verkstjórnanda. 

Þegar aðstoðarfólk starfar hjá fleiri en einum verkstjórnanda biðjum við viðkomandi um að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis að skilningur sé fyrir því að hver verkstjórnandi sé skilgreindur sem aðgreindar starfstöðvar og því er aðstoðarfólk í tveim aðgreindum störfum.

Sé ekki vilji til að skrifa undir þessa yfirlýsingu er eingöngu hægt að starfa í ákveðnu starfshlutfalli hjá hverjum verkstjórnanda. Allar aukavaktir yrðu að vera skráðar sem yfirvinna sem gerir það að verkum að verkstjórnendur hefðu síður hvata til að kalla slíkt aðstoðarfólk á aukavaktir þar sem fjármagnið sem fylgir NPA samningum gerir ekki ráð fyrir yfirvinnu.  

Athugið að þagnarskyldan gildir í þessu tilfelli, aðstoðarfólki er með öllu óheimilt að ræða málefni eins verkstjórnanda við annan. 




Sjálfstætt líf

Starfið

Ráðningar 

Ferðalög

Siðferðisleg álitamál

Uppsögn/ starfslok

Orlof og fæðingarorlof

Skipulag og vaktir

Hlutverk og ábyrgð

Laun aðstoðarfólks

Veikindaréttur og tryggingar

Sími: +354 567 8270
Tölvupóstur: npa@npa.is

Opnunartími: 
Mán-fim. kl. 10:00-15:00 Fös. kl. 10:00-13:00

Urðarhvarf 8A, 2. hæð, 203 Kópavogur
Skipagata 16, 2. hæð, 600 Akureyri
Kennitala: 660710-0270


  • Kökur
  • •
  • Um okkur
  • •
  • Innskráning

Fylgdu okkur

We use cookies to provide you a better user experience on this website. Cookie policy
 Only essentials I agree