NPA miðstöðin hefur skilað inn umsögn um drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018 (ýmsar breytingar) sem félags- og húsnæðismálaráðherra leggur fyrir Alþingi.
Umsögn NPA miðstöðvarinnar í heild sinni getur þú lesið hér.
Fatlað fólk þarf að hafa raunveruleg áhrif
- Það er ekki nóg að stjórnvöld hafi samráð við fatlað fólk eftir að ákvarðanir hafa verið teknar. Fatlað fólk og samtök þeirra þurfa að koma að stefnumótun mála frá byrjun og hafa þar með raunveruleg áhrif á stefnumótun og ákvarðanir.
- Einnig þarf að tryggja að fatlað fólk geti sjálft valið fulltrúa sína og að öllum sé gert kleift að taka þátt, óháð stuðningsþörfum
SIS-mat má ekki eitt og sér ráða því hversu mikla aðstoð fatlað fólk fær
- NPA miðstöðin telur að SIS-mat henti ekki öllum hópum fatlaðs fólks og geti því gefið ranga mynd af þörf einstaklinga fyrir aðstoð.
- Mat á þjónustuþörf verður alltaf að taka mið af aðstæðum og þörfum hvers og eins. Niðurstöður SIS-mats eiga aðeins að vera einn þáttur í því mati en ekki ráða úrslitum um fjölda þjónustustunda. Einnig þarf að taka mið af mati einstaklingsins sjálfs á eigin þörfum.
Vernda þarf persónuupplýsingar fatlaðs fólks
- Frumvarpið gerir ráð fyrir aukinni skráningu upplýsinga um þjónustu við fatlað fólk. NPA miðstöðin hefur áhyggjur af því að slíkt geti leitt til óhóflegt eftirlits með einkalífi fatlaðs fólks.
- Það þarf að setja skýr mörk um hvaða upplýsingum stjórnvöld mega safna og hvernig þær eru notaðar. Ekki á að skrá upplýsingar um persónulegar athafnir, ferðir eða samskipti fólks nema raunveruleg þörf sé á því.
NPA verður áfram að vera undir stjórn notandans
- NPA byggir á því að fatlað fólk stjórni sjálft sinni aðstoð og geti valið þann aðila sem annast umsýslu NPA samningsins.
- NPA miðstöðin hefur áhyggjur af því að breytingar á frumvarpinu geti gert sveitarfélögum kleift að taka yfir umsýslu NPA. Það myndi skapa hagsmunaárekstra þar sem sveitarfélög myndu þá bæði ákveða umfang aðstoðarinnar, fjármagna hana og annast umsýsluna.
- Miðstöðin vill að lögin tryggi að umsýsluaðilar NPA séu í eigu og undir stjórn fatlaðs fólks sjálfs. Þannig verði komið í veg fyrir að NPA verði rekið í hagnaðarskyni eða að notendur missi stjórn á eigin aðstoð.
NPA samningar eiga að vera ótímabundnir
- Í dag eru NPA samningar yfirlett gerðir til eins árs í senn. Það skapar óvissu fyrir bæði verkstjórnendur og aðstoðarfólk.
- NPA miðstöðin leggur til að samningarnir verði að jafnaði ótímabundnir, en hægt verði að endurskoða þá eða segja þeim upp samkvæmt skýrum reglum.
- Þetta myndi auka öryggi verkstjórnenda og auðvelda þeim að gera ótímabundna ráðningarsamninga við aðstoðarfólk.
NPA aðstoð má ekki falla sjálfkrafa niður við sjúkrahúsdvöl
- Fatlað fólk getur áfram þurft aðstoð frá sínu aðstoðarfólki þótt það dvelji á sjúkrahúsi eða annarri stofnun.
- Aðstoðarfólk getur til dæmis verið nauðsynlegt til að tryggja tjáskipti, hreyfingu og persónulega aðstoð. Heilbrigðisstarfsfólk sinnir ekki endilega sömu verkefnum.
- NPA miðstöðin vill tryggja að NPA aðstoð haldi áfram eftir þörfum þegar einstaklingur dvelur á sjúkrahúsi og að ágreiningur á milli stjórnvalda um hver eigi að greiða fyrir aðstoðina á þeim tíma hafi ekki áhrif á notandann.
Tryggja þarf réttindi fatlaðra barna
- NPA miðstöðin fagnar því að frumvarpið styrki réttindi fatlaðra barna og fjölskyldna þeirra.
- Miðstöðin leggur þó áherslu á að börn fái nauðsynlega aðstoð til að geta búið heima hjá fjölskyldum sínum og tekið þátt í almennu frístunda- og félagsstarfi með jafnöldrum sínum.
- Einnig þarf að tryggja að fötluð börn hafi áhrif á eigið líf í samræmi við aldur og þroska.
Niðurstaða
- NPA miðstöðin telur að frumvarpið feli í sér ýmsar jákvæðar breytingar, en að mikilvægt sé að lagfæra nokkur ákvæði áður en það verður að lögum.
- Mikilvægast er að tryggja að fatlað fólk hafi raunverulegt sjálfsákvörðunarvald, geti stjórnað eigin aðstoð og njóti sömu réttinda og annað fólk.
- Lögin eiga að styðja við sjálfstætt líf fatlaðs fólks en ekki auka vald stjórnvalda yfir daglegu lífi þess.