Salóme fæddist í Reykjavík 14. apríl 1986 og ólst upp í Kópavogi. Hún varð stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð og stundaði í framhaldi af því nám í sameindalíffræði og síðar líffræði við Kaupmannahafnarháskóla. Þaðan lá leið hennar í Háskólann í Lúxemborg þar sem hún lagði stund á enskar bókmenntir. Að því loknu flutti hún heim til Íslands og stundaði þá nám við Háskóla Íslands í kynjafræði og bókmenntum.
Salóme var brautryðjandi. Hún fæddist með sjaldgæfan, arfgengan vöðvasjúkdóm, Emery-Dreifuss-vöðvarýrnun (EDMD) og það tók langan tíma að fá skýra greiningu á sjúkdómnum. Salóme fylgdist grannt með rannsóknum á EDMD og sótti ráðstefnur í viðleitni sinni til að afla sér þekkingar á sjúkdómnum. Salóme tók einnig virkan þátt í alþjóðlegu samtali um EDMD og hélt meðal annars erindi við King's College í London. Hún stofnaði jafnframt alþjóðlegan Facebook hóp fyrir fólk með sjúkdóminn þar sem það gat skipst á reynslusögum, deilt upplýsingum og stutt hvert annað. Tilkoma hópsins varð meðal annars til þess að Salóme kom forsvarsmönnum rannsóknar á EDMD í samband við fólk með sjúkdóminn en það hefði að öðrum kosti reynst flókið að hafa uppi á því fólki þar sem sjúkdómurinn er afar sjaldgæfur.
Undir ljúfu og yfirveguðu yfirborði Salóme bjó mikil baráttukona með sterka réttlætiskennd. Salóme var femínisti og aktívisti og kyndilberi réttlætis og jöfnuðar, friðar og mannúðar. Hún vakti iðulega athygli á málefnum þeirra sem vantaði fleiri raddir í sinn kór og notaði samfélagsmiðla sína, fram á síðasta dag, til að vekja athygli á mannréttinda- og baráttumálum sem henni voru hugleikin.
Salóme var mikil talskona fyrir NPA og rétti fatlaðs fólks til sjálfstæðs lífs og birtist barátta hennar fyrir réttindum fatlaðs fólks ekki síst í virkri þátttöku hennar í félags- og hagsmunastarfi. Hún var í fötlunarhreyfingu Tabú frá upphafi, 2014, og tók þátt í starfi ýmissa nefnda og ráða á vegum ÖBÍ. Þá sat hún einnig í notendaráði Kópavogsbæjar í málefnum fatlaðs fólks.
Salóme gerðist félagskona í NPA miðstöðinni 1. mars 2019 en það var ekki fyrr en í maí 2021 sem NPA samningur hennar tók gildi. Hún þekkti af eigin raun hversu flókið og langdregið það getur verið að fá þá aðstoð sem nauðsynleg er til að lifa sjálfstæðu lífi. Salóme tók sæti í stjórn NPA miðstöðvarinnar árið 2021 og gegndi því hlutverki allt til hinsta dags. Við hjá NPA miðstöðinni minnumst Salóme með mikilli hlýju og þakklæti fyrir samstarfið og samfylgdina.
Laugardaginn 3. október síðastliðinn, kvöddum við Salóme í litríkri og ljúfsárri kveðjuveislu sem haldin var henni til heiðurs. Í anda Salóme og kveðjuveislunnar verða lokaorðin hér: Ekkert um okkur án okkar, ást er ást og frjáls Palestína!
Þeir sem vilja minnast Salóme er bent á að hún óskaði eftir styrkjum í Neyðarsöfnun félagsins Ísland-Palestína: https://palestina.is/neydarsofnun-fyrir-palestinu/
Við sendum Victori, eftirlifandi eiginmanni hennar, fjölskyldu hennar og öðrum ástvinum innilegar samúðarkveðjur.
Myndlýsing: Salóme er með rauðskollitað hár, brosir lítillega og er í ljósbláum bol með grafískri teikningu framan á. Á bak við hana glittir í höldurnar á hjólastólnum sem hún situr í en myndin er skorin örlítið fyrir neðan bringu. Á bak við Salóme er skærgulur bakgrunnur.