Það ríkti mikil gleði hjá NPA miðstöðinni þegar 15 ára afmæli miðstöðvarinnar var fagnað með opnu húsi, mánudaginn 16. júní síðastliðinn. Hátt í hundrað manns mættu og nutu samverunnar, góðra veitinga og létu reyna á heppni sína í lukkuhjólinu, hvar í boði voru ýmsir NPA vinningar. Rúnar Björn Herrera Þorkelsson, formaður NPA miðstöðvarinnar ávarpaði samkomuna.
Meðal gesta var Björn Skúlason, forsetamaki, sem Rúnar formaður leysti út með gjöfum, m.a. forláta silkiklút, ætlaðan Höllu Tómasdóttur forseta. NPA miðstöðin þakkar öllum þeim sem mættu fyrir samveruna og samstarfið í gegnum árin!
Myndir: Ernir Eyjólfsson