Haustið 2024 opnaði NPA miðstöðin útibú á Akureyri með það fyrir augum að auka þjónustu við félagsfólk sitt á Norðurlandi. NPA miðstöðin hafði stefnt að opnun útibús á Akureyri um nokkurt skeið en skriður komst þó ekki á málið fyrr en Breki Arnarsson, ráðgjafi hjá NPA miðstöðinni, nefndi það við framkvæmdastjóra miðstöðvarinnar að hann stefndi að því að flytja til Akureyrar.
Hugurinn stefndi norður á Akureyri
Breki er ættaður frá Dalvík, bjó á Akureyri frá tíu ára aldri, gekk í Menntaskólann á Akureyri og flutti úr bænum um tvítugt. Í upphafi árs 2023 hóf Breki störf sem ráðgjafi hjá NPA miðstöðinni. Að sögn Breka hafði það verið á stefnuskrá NPA miðstöðvarinnar í nokkur ár, að opna útibú á Akureyri. „Bæði til að auka nærþjónustu við félagsfólk okkar hér á Norðurlandi en ekki síst til að vekja betur athygli á NPA sem þjónustuformi á svæðinu. Þegar ég ræddi við minn yfirmann [Hjört Örn Eysteinsson, framkvæmdastjóra NPA miðstöðvarinnar] um að ég væri að stefna á að flytja norður til Akureyrar opnaðist umræðan um það hvort ég hefði áhuga á því að koma að opnun útibús á Akureyri. Eftir nokkra leit að hentugu húsnæði opnaði NPA miðstöðin útibú að Hafnarstræti 97.“ Breki segir að það hafi verið gott að komast aftur norður eftir að hafa búið í nokkur ár í Reykjavík. „Þó það séu vissulega viðbrigði að flytja aftur í smærra samfélag.“
Félagsfólk ánægt með að fá beinni aðgang að ráðgjafa
Að sögn Breka er starf ráðgjafans eins, hvort sem hann er á Akureyri eða í Reykjavík. „Starf mitt sem ráðgjafi hefur í raun ekki breyst þótt maður sé kominn norður. Ég sinni áfram þeirri ráðgjöf og aðstoð sem við veitum félagsfólki okkar, en nú gefst mér tækifæri til að hitta fólk í persónu og mæta heim til fólks í stað þess að samskiptin fari eingöngu fram í gegnum síma eða tölvupóst. Maður finnur það að félagsfólkið er ánægt með að fá ráðgjafa sem það hefur meiri beinan aðgang að.“
Tengiliður við sveitarfélög á Norðurlandi
Þó svo að verkefni Breka séu í grunninn þau sömu og verkefni annarra ráðgjafa þá er hann einnig tengiliður NPA miðstöðvarinnar gagnvart sveitarfélögum á Norðurlandi og ber ábyrgð á þróun þjónustunnar á svæðinu, auk þess að sjá um daglegan rekstur útibúsins á Akureyri.
Finnur fyrir auknum áhuga almennings og hagsmunafélaga
Breki segir að þau viðbrögð sem hann hafi fengið eftir opnun útibúsins á Akureyri hafi verið góð. „Bæði frá okkar félagsfólki og aðstoðarfólki en einnig finnur maður fyrir auknum áhuga almennings og hagsmunafélaga á NPA. Ég fæ reglulega heimsóknir og fyrirspurnir frá fólki sem er að kynna sér NPA og svo sér maður líka aukinn áhuga fólks á að gerast NPA aðstoðarmanneskja.“
Áskorun að finna aðstoðarfólk í minni sveitarfélögum
Er einhver munur á aðstæðum verkstjórnenda á landsbyggðinni og svo á höfuðborgarsvæðinu? „Það getur verið áskorun í minni sveitarfélögum að finna aðstoðarfólk sem hentar manni. Bæði eru færri umsóknir og oft eru meiri tengsl í minni sveitarfélögum.“
Nýtt húsnæði hentar vel
Í október 2025 flutti skrifstofa NPA miðstöðvarinnar úr Hafnarstrætinu yfir á Skipagötu 16. Breki segir að núverandi vistarverur henti vel. „Hér er bæði rými til að taka spjall innan skrifstofunnar en einnig erum við með fundarherbergi þar sem haldnir hafa verið stærri fundir,“ segir Breki og bætir við að hann búist við að skrifstofa NPA miðstöðvarinnar verið á sama stað eitthvað inn í framtíðina.
Myndlýsing: Breki er dökkhærður, með svört gleraugu, er í grárri peysu, svartri skyrtu og ljósum buxum. Hann situr í stól fyrir framan stóran svartan tölvuskjá. Fyrir aftan Breka eru stórir gluggar og út um þá sést í nærliggjandi hús.