Skip to Content
NPA miðstöðin svf.
  • NPA miðstöðin
    • Staðsetning
    • Samþykktir
    • Stjórn og starfsfólk
    • Ársskýrslur
    • Siðasáttmáli
    • Pistlar
    • Persónuverndarstefna
  • NPA
    • Hvað er NPA?
    • Hugmyndafræðin
    • Hlutverk NPA miðstöðvarinnar
    • Hlutverk og ábyrgð verkstjórnanda
    • Hlutverk aðstoðarverkstjórnanda
    • Hlutverk aðstoðarfólks
    • Skýrslur, rannsóknir og kannanir
  • Félagsfólk
    • Viltu vera með?
    • Handbók Verkstjórnenda
    • Siðasáttmáli
    • Ráðningarform
    • Ráðgjöf iðjuþjálfa
    • Tímon tímaskráning
  • Aðstoðarfólk
    • Störf í boði
    • Kjarasamningar
    • Hlutverk aðstoðarfólks
    • Hlutverk aðstoðarverkstjórnanda
    • Siðasáttmáli
    • Fæðingarorlof
    • Launakjör Aðstoðarfólks
    • Vinnuslys
  • Viðburðir
  • 0
  • Hafðu samband
NPA miðstöðin svf.
  • 0
    • NPA miðstöðin
      • Staðsetning
      • Samþykktir
      • Stjórn og starfsfólk
      • Ársskýrslur
      • Siðasáttmáli
      • Pistlar
      • Persónuverndarstefna
    • NPA
      • Hvað er NPA?
      • Hugmyndafræðin
      • Hlutverk NPA miðstöðvarinnar
      • Hlutverk og ábyrgð verkstjórnanda
      • Hlutverk aðstoðarverkstjórnanda
      • Hlutverk aðstoðarfólks
      • Skýrslur, rannsóknir og kannanir
    • Félagsfólk
      • Viltu vera með?
      • Handbók Verkstjórnenda
      • Siðasáttmáli
      • Ráðningarform
      • Ráðgjöf iðjuþjálfa
      • Tímon tímaskráning
    • Aðstoðarfólk
      • Störf í boði
      • Kjarasamningar
      • Hlutverk aðstoðarfólks
      • Hlutverk aðstoðarverkstjórnanda
      • Siðasáttmáli
      • Fæðingarorlof
      • Launakjör Aðstoðarfólks
      • Vinnuslys
    • Viðburðir
  • Hafðu samband

Ég ER mjög glaður með NPA

Viðtal við Sveinbjörn Benedikt Eggertsson, félagsmann í NPA miðstöðinni
26. maí 2026 by
Ég ER mjög glaður með NPA
Ágústa Arna Sigurdórsdóttir

Við hittum Sveinbjörn, félaga í NPA miðstöðinni og NPA verkstjórn­anda, á heimili hans fyrir stuttu þar sem hann er að jafna sig eftir fótbrot og spjölluðum um lífið og NPA. Við byrjuðum á að spyrja Sveinbjörn að því hverju NPA hefði breytt fyrir hann og það stóð ekki á svari. „Öllu! Ég á stóra fjölskyldu úti á landi og ég get ferðast og hitt þau. Og ég get ferðast um heiminn.“  

Skellti sér á þjóðhátíð 
Síðasta sumar fór Sveinbjörn á þjóðhátíð í Vest­mannaeyjum um verslunarmannahelg­ina. „Ég fór á þjóðhátíð, mér var komið á óvart. Stefnan er sett á að fara aftur á þjóðhátíð og gera þetta bara árlegt. Ég sá Bjögga Halldórs, blessuð sé minning hans, stíga á svið í síðasta skipti.“ 

Sveinbjörn segir að það sé margt sem hann geti gert með NPA sem hann gat ekki gert áður. „Hitta fjölskylduna mína sem býr úti á landi og stunda nám og alls konar.“ En líðan þín? „Hún er miklu betri. Nú er ég bara með mína starfsmenn 24/7, sem er magnað. Ég er mjög glaður með NPA,“ segir Sveinbjörn.

Ánægður með aðstoðarfólkið 
Sveinbjörn segir að hann sé duglegur að sækja þau námskeið sem NPA miðstöðin ­býður upp á. Þá hefur hann einnig fengið aðstoð frá ráð­gjöfum með hvernig á að vera verk­stjórnandi. „Að koma rétt fram við starfsfólk. En ég er mjög ánægður með starfsfólkið mitt.“ 

Áður en Sveinbjörn fékk NPA bjó hann í íbúðarkjarna. Þar fékk Sveinbjörn ekki þá þjónustu sem hann þurfti. „Ég fékk innlit í klukkutíma á dag og þurfti að bíða eftir því. Ég þurfti að fara upp í rúm á ákveðnum tíma í búsetukjarnanum, núna þarf ég ekki að fara upp í rúm á ákveðnum tíma.“ 

Sveinbjörn stundar boccia af miklum móð og keppir á bocciamótum víða um land. Áður en hann fékk NPA gat hann ekki valið hvaða starfsfólk færi með honum. „Ég gat ekki valið starfsfólk. Bara nú ertu að fara og ég gat ekki ráðið hver fór með mér.“ 

NPA breytti lífinu til hins betra 
Að sögn Sveinbjörns breytti NPA lífi hans til hins betra og fjölskylda hans er ánægð með þá þjónustu sem hann fær nú. „Ég get hitt ættingjana mína, farið á djammið þegar mig lang­ar og farið allt sem mig langar án stopps.“ 

Sveinbjörn er mikill knatt­spyrnu­áhugamaður. „Ég er mik­ill ­Bliki og er Manchester United aðdáandi og stefnan er að fara út með pabba og fjöl­skyld­­unni í haust.“ Þá hefur Sveinbjörn lokið diplómu í tómstunda- og félagsmálafræði með stæl og stefnir á BA gráðu í tómstunda- og félags­málafræði þegar farið verður að bjóða upp á það. 

Sveinbjörn er maður margra hatta og er í stjórnum ýmissa félagasamtaka. Þannig er Sveinbjörn varaformaður Þroskahjálpar, varaformaður Átaks, fólks með þroskahöml­un og er formaður stuðningsmannasveitar Aftureldingar. Auk þess er hann ritari í notenda­ráði fatlaðra í Mosfellsbæ. „Og þá tek ég með mér minn aðstoðarmann á fund hjá notendaráði sem skrif­ar niður á fundinum,“ segir Sveinbjörn og bætir við að hann gæti þetta ekki nema með NPA. 

Þá ferðast Sveinbjörn mikið. „Ég er bara í útilegum á sumrin, ég er ekki í bænum,“ seg­ir Sveinbjörn sem leggur oft land undir fót með litlum fyrirvara og nefnir sem dæmi. „Æi það er gott veður á Akureyri, skellum okkur til Akur­eyrar. Það er gott veður á Húsavík, skell­um ­okkur til Húsavíkur,“ segir Sveinbjörn að lokum. 

in Greinar

Sími: +354 567 8270
Tölvupóstur: npa@npa.is

Opnunartími: 
Mán-fim. kl. 10:00-15:00 Fös. kl. 10:00-13:00

Urðarhvarf 8A, 2. hæð, 203 Kópavogur
Skipagata 16, 2. hæð, 600 Akureyri
Kennitala: 660710-0270


  • Kökur
  • •
  • Um okkur
  • •
  • Innskráning

Fylgdu okkur

We use cookies to provide you a better user experience on this website. Cookie policy
 Only essentials I agree