Skip to Content
NPA miðstöðin svf.
  • NPA miðstöðin
    • Staðsetning
    • Samþykktir
    • Stjórn og starfsfólk
    • Ársskýrslur
    • Siðasáttmáli
    • Pistlar
    • Persónuverndarstefna
  • NPA
    • Hvað er NPA?
    • Hugmyndafræðin
    • Hlutverk NPA miðstöðvarinnar
    • Hlutverk og ábyrgð verkstjórnanda
    • Hlutverk aðstoðarverkstjórnanda
    • Hlutverk aðstoðarfólks
    • Skýrslur, rannsóknir og kannanir
  • Félagsfólk
    • Viltu vera með?
    • Handbók Verkstjórnenda
    • Siðasáttmáli
    • Ráðningarform
    • Ráðgjöf iðjuþjálfa
    • Tímon tímaskráning
    • Áhættumat
  • Aðstoðarfólk
    • Störf í boði
    • Kjarasamningar
    • Hlutverk aðstoðarfólks
    • Hlutverk aðstoðarverkstjórnanda
    • Bakvarðarsveit
    • Siðasáttmáli
    • Fæðingarorlof
    • Launakjör Aðstoðarfólks
    • Vinnuslys
    • Handbók aðstoðarfólks
  • Viðburðir
  • 0
  • Hafðu samband
NPA miðstöðin svf.
  • 0
    • NPA miðstöðin
      • Staðsetning
      • Samþykktir
      • Stjórn og starfsfólk
      • Ársskýrslur
      • Siðasáttmáli
      • Pistlar
      • Persónuverndarstefna
    • NPA
      • Hvað er NPA?
      • Hugmyndafræðin
      • Hlutverk NPA miðstöðvarinnar
      • Hlutverk og ábyrgð verkstjórnanda
      • Hlutverk aðstoðarverkstjórnanda
      • Hlutverk aðstoðarfólks
      • Skýrslur, rannsóknir og kannanir
    • Félagsfólk
      • Viltu vera með?
      • Handbók Verkstjórnenda
      • Siðasáttmáli
      • Ráðningarform
      • Ráðgjöf iðjuþjálfa
      • Tímon tímaskráning
      • Áhættumat
    • Aðstoðarfólk
      • Störf í boði
      • Kjarasamningar
      • Hlutverk aðstoðarfólks
      • Hlutverk aðstoðarverkstjórnanda
      • Bakvarðarsveit
      • Siðasáttmáli
      • Fæðingarorlof
      • Launakjör Aðstoðarfólks
      • Vinnuslys
      • Handbók aðstoðarfólks
    • Viðburðir
  • Hafðu samband

Árlegur fundur NCCPA samráðsvettvangsins haldinn í Reykjavík

5. nóvember 2026 by
Árlegur fundur NCCPA samráðsvettvangsins haldinn í Reykjavík
Ágústa Arna Sigurdórsdóttir

Síðastliðið vor, dagana 11.-12. maí, hélt Nordic Competence Centre for Personal Assistance (NCCPA) samráðsvettvangurinn sinn árlega fund í Reykjavík. Þetta var í þriðja sinn sem slíkur fundur er haldinn en stofnfundurinn var í Noregi 2024. 

NCCPA samráðsvettvangurinn var stofnaður af tíu hagsmunafélögum á Norðurlöndunum sem öll hafa hugmyndafræðina um sjálfstætt líf að leiðarljósi í sínu starfi. Markmiðið með stofnun NCCPA er að halda utan um verklag um NPA á Norðurlöndunum og gera samanburð á milli landa. Fulltrúar NPA miðstöðvarinnar í NCCPA samráðsvettvanginum eru þau Erna Eiríksdóttir, fræðslustýra NPA miðstöðvarinnar og Hallgrímur Eymundsson og Þorbera Fjölnisdóttir, meðstjórnendur í stjórn NPA miðstöðvarinnar.

Hindranir í framkvæmd þrátt fyrir  lögleiðingu SRFF
Helstu niðurstöður fundarins  voru þær að þrátt fyrir að Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) hafi verið lögleiddur í Finnlandi, Íslandi og Noregi og að lögleiðing samningsins hafi styrkt réttarstöðu fatlaðs fólks í þessum löndum, þá séu enn verulegar hindranir til staðar þegar kemur að framkvæmd samningsins. Alls staðar á Norðurlöndunum setja stjórnvöld og sveitarfélög fjárhagsleg markmið ofar mannréttindum og veldur það biðlistum eftir þjónustu og aukinni áherslu á stofnanalausnir og sambýli fremur en á sjálfstætt líf.

NPA lykilforsenda fyrir þátttöku í samfélaginu
Fram komu auknar áhyggjur af því að afturför væri að eiga sér stað þegar kemur að NPA og sjálfstæðu lífi. Bent var á þróun þar sem réttindi eru sífellt þrengra túlkuð, fjármögnun er ófullnægjandi, eftirlit er aukið og neikvæð umræða um svik og kostnað grefur undan markmiðum um sjálfstætt líf. Á sama tíma var ítrekað bent á að NPA væri lykilforsenda fyrir þátttöku í samfélaginu, atvinnu- og fjölskyldurétti og að NPA væri hagkvæmara fyrir samfélagið en stofnanalausnir.

Nauðsynlegt að efla norrænt samstarf
Fundargestir voru einnig sammála um að nauðsynlegt væri að efla norrænt samstarf og safna betri  gögnum um stöðu fatlaðs fólks og framkvæmd réttinda þeirra samkvæmt SRFF. Ákveðið var að vinna að samnorrænni könnun um NPA og sjálfstætt líf, efla samstarf við fræðasamfélagið og sækja um rannsóknarstyrki til að styrkja málstaðinn um sjálfstætt líf með gögnum og rannsóknum.

Stofna félagasamtök utan um NCCPA
Á fundinum var einnig ákveðið að stofna félagasamtök utan um NCCPA samráðsvettvanginn til að efla norrænt samstarf á sviði mannréttindabaráttu, miðlun þekkingar og sameiginlegrar hagsmunagæslu fyrir NPA og sjálfstætt líf.

Ánægjulegt að eiga í samstarfi við systurfélög á Norðurlöndum
Næsti fundur NCCPA verður haldin í Þrándheimi í Noregi í maí 2027 í tengslum við Nordic Network on Disability research (NNDR) ráðstefnuna sem haldin verður þar á sama tíma en NNDR ráðstefnan er haldin annað hvert ár. Það er ánægjulegt fyrir NPA miðstöðina að eiga í samstarfi við systurfélög sín á Norðurlöndunum. Við fáum mikinn styrk af samstarfinu og það er mikilvægt að læra hvert af öðru.

in Greinar

Sími: +354 567 8270
Tölvupóstur: npa@npa.is

Opnunartími: 
Mán-fim. kl. 10:00-12:00 & 12:30-15:00 
Fös. kl. 10:00-12:00

Urðarhvarf 8A, 2. hæð, 203 Kópavogur
Skipagata 16, 2. hæð, 600 Akureyri
Kennitala: 660710-0270


  • Kökur
  • •
  • Um okkur
  • •
  • Innskráning

Fylgdu okkur

We use cookies to provide you a better user experience on this website. Cookie policy
 Only essentials I agree