Aðalfundur NPA miðstöðvarinnar fór fram í húsnæði miðstöðvarinnar laugardaginn 9. maí síðastliðinn.
28 eigendur NPA miðstöðvarinnar sóttu aðalfundinn, annað hvort á staðnum eða rafrænt. Einnig voru nokkur í hópi starfsfólks á fundinum.
Eftirfarandi einstaklingar skipa aðalstjórn NPA miðstöðvarinnar 2026-2027:
Rúnar Björn Herrera Þorkelsson, formaður
Meðstjórnendur:
- Hallgrímur Eymundsson
- Margrét Sigríður Guðmundsdóttir
- Þorbera Fjölnisdóttir
- Salome Mist Kristjánsdóttir
Þau munu skipta með sér verkum á fyrsta stjórnarfundi.
Eftirtaldar voru kosnar varamenn í stjórn:
- Björk Sigurðardóttir, 1. varamaður
- Þuríður Harpa Sigurðardóttir, 2. varamaður
- Margrét Lilja Arnheiðardóttir, 3. varamaður
Tillaga um bakvarðasveit samþykkt
Tillaga um bakvarðasveit var kynnt og borin undir fundinn og samþykkt samhljóða. Markmið bakvarðarsveitarinnar er að tryggja samfellu í þjónustu, draga úr líkum á rofi og auka öryggi verkstjórnenda. Unnið verður að því að koma bakvarðarsveitinni í framkvæmd sem fyrst og munu verkstjórnendur fá nánari upplýsingar um fyrirkomulagið á bakvarðarsveitinni að því loknu.
Umræður um kröfur Reykjavíkurborgar varðandi 5%-in
Undir liðnum Önnur mál sköpuðust þó nokkrar umræður um kröfur Reykjavíkurborgar um skil á upplýsingum um nýtingu verkstjórnenda á 5%unum vegna starfsmannakostnaðar. NPA miðstöðin hefur borið kröfu Reykjavíkurborgar undir Persónuvernd og bíður niðurstöðu hennar.
Hér er hægt að lesa ársskýrslu NPA miðstöðvarinnar fyrir starfsárið 2025-2026.