Spjallað um NPA: Nýliðakvöld
Spjallað um NPA:
Nýliðakvöld
Spjallað um NPA: Nýliðakvöld
Haldið verður nýliðakvöld fyrir félagsfólk sem er að taka sín fyrstu skref í átt að sjálfstæðu lífi með NPA.
Fyrstu mánuðirnir geta verið yfirþyrmandi með nýrri ábyrgð sem verkstjórnandi en þá er gott að vita af öðrum í NPA miðstöðinni sem hafa verið á nákvæmlega sama stað.
Farið verður yfir hugmyndafræðina sem NPA byggir á ásamt hlutverki og ábyrgð verkstjórnenda og aðstoðarfólks. Mikið verður um umræður og hægt að spyrja um allt það sem tengist NPA til að styrkja nýja verkstjórnendur í því að stjórna sínu lífi.
Við hvetjum öll til að mæta, bæði nýja verkstjórnendur sem og þau sem búa að meiri reynslu.
Nánari upplýsingar
FYRIR HVERJA: Verkjstórnendur hjá NPA miðstöðinni
KOSTNAÐUR: Frítt fyrir félagsfólk NPA miðstöðvarinnar.
AÐGENGI: Fullt aðgengi.
VEITINGAR. Léttar veitingar í boði.