Skiltagerðarfundur fyrir aðgengisstrollið
Komdu að búa til kröfuskilti!
Þér er boðið á skiltagerðarfund fimmtudaginn 3. september kl. 15:00-17:00 til undirbúnings aðgengisstrolli þriðjudaginn 8. september.
Það væri frábært ef þú myndir skrá mætingu þína með því að ýta á appelsínugula takkann hér til hægri. Það auðveldar okkur að versla veitingar og skiltagerðarefni. Skiltagerðin fer fram í húsnæði NPA miðstöðvarinnar og verður snarl, kaffi og gos í boði. Gott aðgengi er að húsnæðinu.
Skellum í góða samverustund og kveikjum á baráttuandanum! Það eru grundvallarmannréttindi að hafa aðgengi til jafns við aðra.
CP félagið, Gigtarfélag Íslands, MND á Íslandi, MS félag Íslands, NPA miðstöðin, SEM samtökin og Sjálfsbjörg standa fyrir aðgengisstrollinu.