Skip to Content

Samskipti á vinnustað - hvernig tækla ég erfið samtöl

Bæta við á dagatal:
Samskipti á vinnustað - erfið samtöl


NPA miðstöðin, í samstarfi við sálfræðistofuna Líf og sál, heldur námskeið um samskipti á vinnustað. 

Fjallað verður um samskipti á vinnustað og ágætar leiðir til að tækla erfið samtöl.

Það er flókið að vera yfirmaður, og hvað þá að vera yfirmaður á vinnustað sem er jafn persónulegur og manns eigið líf í gegnum NPA. Til að svara ákalli frá verkstjórnendum fengum við Auði Erlu frá Líf og sál til liðs við okkur til að búa til fræðsluerindi um akkúrat þetta. Fræðslan er ætluð til að styrkja verkstjórnendur í hlutverki sínu og opna á hispurslaust spjall um þær áskoranir sem verkstjórnendur mæta í daglegu lífi með NPA.


Við hlökkum til að sjá sem flest. 


Staðsetning: Urðarhvarfi 8A, 2 hæð. 

Fyrir hverja: Verkstjórnendur hjá NPA miðstöðinni, aðstoðarverkstjórnendur einnig velkomin. 

Aðgengi: Fullt aðgengi er að Urðarhvarfi, einnig er hægt að óska eftir rafrænu aðgengi og verður þá hlekkur sendur á þátttakendur. 



*NPA miðstöðin áskilur sér þann rétt að fella niður námskeið eða sameina með öðru með skömmum fyrirvara náist ekki lágmarks skráning á hvert námskeið eða vegna annara ófyrirsjánlegra aðstæðna.