Hinsegin spjall
Hinsegin spjall í NPA miðstöðinni
Verkstjórnendum gefst færi á að sækja hinsegin fræðslu í boði NPA miðstöðvarinnar. Spjallinu er ætlað að styrkja verkstjórnendur í hlutverki sínu sem yfirmenn alls konar fólks. Við sköpum afslappað andrúmsloft og opnum á hispurslaust spjall um fjölbreytileikann.
Leiðbeinandi er Íris Péturs fræðslufulltrúi hjá NPA miðstöðinni.
Nánari upplýsingar
FYRIR HVERJA: Verkstjórnendur hjá NPA miðstöðinni
KOSTNAÐUR: Frítt fyrir félagsfólk NPA miðstöðvarinnar.
AÐGENGI: Fullt aðgengi.
VEITINGAR. Léttar veitingar í boði.