Fjármálalæsi fyrir verkstjórnendur
NPA miðstöðin heldur námskeið í fjármálalæsi tengt NPA samningum.
Námskeiðið er ætlað verkstjórnendum með umsýslu hjá NPA miðstöðinni.
Farið verður yfir þau helstu atriði sem er gott fyrir verkstjórnendur að þekkja þegar kemur að NPA samningum.
Til dæmis verður fjallað um það hvernig jafnaðartaxtinn er reiknaður fyrir árið, hvað þarf að vita um upphæð samningsins og rýnum ítarlega í NPA innsýn og farið yfir það helsta sem þarf að þekkja úr kjarasamningum.
Leiðbeinandi er Jón Pálmar Guðmundsson, ráðgjafi hjá NPA miðstöðinni, ásamt Ernu Eiríksdóttur, fræðslustýru.
Hvar: Urðarhvarf 8A, 2 hæð
Kostnaður: Frítt fyrir félagsfólk.
Aðgengi: Fullt aðgengi, einnig er hægt að óska eftir rafrænu aðgengi og verður þá hlekkur sendur á þátttakendur.
Fyrir hverja: Verkstjórnendur hjá NPA miðstöðinni, aðstoðarverkstjórnendur einnig velkomin.
Veitingar: Léttar veitingar.
Rafrænn aðgangur: Hægt er að óska eftir því að koma inn á námskeiðið rafrænt.
*NPA miðstöðin áskilur sér þann rétt að fella niður námskeið eða sameina með öðru með skömmum fyrirvara náist ekki lágmarks skráning á hvert námskeið eða vegna annara ófyrirsjánlegra aðstæðna.