Aðalfundur NPA miðstöðvarinnar 2025
Ágæti félagi í NPA miðstöðinni.
Þar sem kosning á aðalfundi fer fram rafrænt er nauðsynlegt fyrir fólk að skrá mætingu á aðalfundinn, hvort sem viðkomandi mætir á fundinn eða tekur þátt rafrænt.
Til að skrá sig: Ýttu á appelsínugula "Skráning" hnappinn hér fyrir ofan.
Rafræn þáttaka möguleg
Athugið: Einnig verður boðið upp á að taka þátt í fundinum í gegnum fjarfundaforrit. Hlekkur fyrir fjarfund verður sendur út þegar nær dregur.
Aðalfundur NPA miðstöðvarinnar svf. verður haldinn laugardaginn 31. maí nk. kl. 15:00 og er áætlað að honum ljúki um kl. 17:30. Fundurinn verður haldinn á skrifstofu NPA miðstöðvarinnar að Urðarhvarfi 8A í Kópavogi.
Gott aðgengi og hreinlætisaðstaða er á staðnum. Boðið verður upp á veitingar bæði á meðan á fundi stendur og að honum loknum.