Skip to Content

Aðalfundur 2026

Bæta við á dagatal:

Ágæti félagi í NPA miðstöðinni.

Aðalfundur NPA miðstöðvarinnar svf. verður haldinn laugardaginn 9. maí nk. kl. 15:00 og er áætlað að honum ljúki um kl. 17:30. Fundurinn verður haldinn á skrifstofu NPA miðstöðvarinnar að Urðarhvarfi 8A í Kópavogi. 


Til að skrá sig: Ýttu á appelsínugula "Skráning" hnappinn hér fyrir ofan.

Þar sem kosning á aðalfundi fer fram rafrænt er nauðsynlegt fyrir fólk að skrá mætingu á aðalfundinn, hvort sem viðkomandi mætir á fundinn eða tekur þátt rafrænt. 


Rafræn þáttaka möguleg

Einnig verður boðið upp á að taka þátt í fundinum í gegnum fjarfundaforrit. Hlekkur fyrir fjarfund verður sendur út þegar nær dregur.


Gott aðgengi og hreinlætisaðstaða er á staðnum. Boðið verður upp á veitingar bæði á meðan á fundi stendur og að honum loknum.