NPA námskeið 2: Hlutverk, ábyrgð og samskipti í NPA

SKRÁNING: Smellið á þennan hlekk.

Hægt er að skrá sig á námskeið 2, á alla námskeiðsröðina og á biðlista eftir rafrænni námskeiðsröð.
Registration for a waitlist for a course in English in the link above.

SÍÐASTI SKRÁNINGARDAGUR 3. janúar 2023.

NPA NÁMSKEIÐ 2:
Hlutverk, ábyrgð og samskipti í NPA

Hvenær? Fimmtudaginn 5. janúar 2023 kl. 13:00-16:00
Sjálfstæð námskeið Námskeiðin þarf ekki að taka í réttri röð. Hvert námskeið er sjálfstætt framhald af því sem var á undan.
Fyrir hverja? Námskeiðið er öllum opið en félagsfólk og aðstoðarfólk NPA mið­stöðvarinnar nýtur forgangs. Takmörkuð sæti í boði.
Hvar? Námskeiðið verður haldið á skrifstofu NPA miðstöðvarinnar að Urðarhvarfi 8A, 2.hæð.

Fyrir verkstjórnendur: Fimmtudaginn 5. janúar 2023 kl. 13:00-16:00
Fyrir aðstoðarfólk og aðstoðarverkstjórnendur: Fimmtudaginn 5. janúar 2023 kl. 13:00-16:00
Tvö námskeið verða haldin á sama tíma. NPA verkstjórn­endur sækja annað námskeiðið en aðstoðarfólk og aðstoðarverk­stjórnendur hitt. Efni námskeiða fyrir verkstjórnendur annars vegar og aðstoðarfólk hins vegar, er nokkurnveginn það sama en áherslur geta verið misjafnar enda hlutverk fólks í hvorum hóp ólík. 
Að auki sækja aðstoðarverkstjórnendur stutt námskeið, sem lýkur eigi síðar en 17:30, þar sem farið er nánar yfir það sem snýr sérstaklega að aðstoðarverkstjórnendum. 

VIÐFANGSEFNI

Verkstjórnendur
» Innsýn í hlutverk og ábyrgð verkstjórnenda og aðstoðarfólks
» Mikilvægi opinna og góðra samskipta
» Siðareglur NPA miðstöðvarinnar
» Trúnaðaryfirlýsing og mikilvægi trúnaðar
» Aðstæður sem upp geta komið skoðaðar og möguleg viðbrögð við þeim
» Ráðningar og ráðningarviðtöl
» Vaktafyrirkomulag og gerð vaktaplana og vinnuskýrslna
» Umræður

Aðstoðarverkstjórnendur
» Innsýn í hlutverk og ábyrgð verkstjórnenda og aðstoðarfólks
» Hlutverk og sérstaða aðstoðarverkstjórnenda
» Mikilvægi þess að virða ­sjálfstæði verkstjórnanda og H-in fimm
» Mikilvægi opinna og góðra samskipta
» Siðareglur NPA miðstöðvarinnar
» Trúnaðaryfirlýsing og mikilvægi trúnaðar
» Aðstæður sem upp geta komið skoðaðar og möguleg viðbrögð við þeim
» Ráðningar og ráðningarviðtöl
» Vaktafyrirkomulag og gerð vaktaplana og vinnuskýrslna
» Umræður

Aðstoðarfólk
» Innsýn í hlutverk og ábyrgð verkstjórnenda og aðstoðarfólks
» Mikilvægi opinna og góðra samskipta
» Siðareglur NPA miðstöðvarinnar
» Trúnaðaryfirlýsing og mikilvægi trúnaðar
» Aðstæður sem upp geta komið skoðaðar og möguleg viðbrögð við þeim
» Umræður

MARKMIÐ NÁMSKEIÐS
» Að þátttakandi öðlist skilning á ólíkum hlutverkum verkstjórnenda, aðstoðarverkstjórnenda og aðstoðarfólks
» Að þátttakendur öðlist innsýn í mikilvægi þess að eiga góð samskipti og að vel sé haldið utanum ýmis starfsmannamál
» Að þátttakendur öðlist skilning á siðasáttmála NPA miðstöðvarinnar

LEIÐBEINENDUR
Erna Eiríksdóttir, NPA ráðgjafi.
Hallgrímur Eymundsson, NPA verkstjórnandi.
Sigurður Egill Ólafsson, NPA aðstoðarmaður.
María Rúnarsdóttir, félagsráðgjafi og sáttamiðlari á Samskiptastöðinni.

Fyrirspurnir sendist til This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

NÁNARI UPPLÝSINGAR
Verð
 Ókeypis fyrir ­félagsfólk, aðstoðarfólk og aðstoðarverk­stjórnendur NPA miðstöðvarinnar. Kr. 9.000 fyrir námskeiðsröðina fyrir aðra og kr. 2.000 fyrir eitt stakt námskeið. Ef viðkomandi missir af námskeiði er hægt að sækja það námskeið næst þegar það er í boði. 
English speaking The course is in Ice­landic but will be offered in English in the future. Waitlist registration is open.

Hvar
Skrifstofa
NPA miðstöðvarinnar
Urðarhvarf 8
Inngangur A, 2. hæð
203 Kópavogur

Aðgengi Fullt aðgengi.
Sóttvarnir Húsnæði NPA miðstöðvarinnar er rúmgott og auðvelt að viðhalda fjarlægð. Spritt og grímur á staðnum.
Veitingar Léttar veitingar í hléi.
Viðurkenning Þau sem hafa lokið allri NPA grunnnámskeiðsröðinni er veitt viðurkenning.

NPA miðstöðin