Kynningarfundur
Hér má sjá síðuna sem var sett upp fyrir kynningarfundinn. Þar er dagskrá fundarins og í henni eru tenglar á gögn sem voru á fundinum og voru sett á netið að fundi loknum.
Um stofnun samvinnufyrirtækis
Laugardaginn 5. júní kl. 14:00 var haldinn kynningarfundur um stofnun samvinnufyritækis um notendastýrða persónulega aðstoð. Fundurinn var haldinn á Grand Hótel í Reykjavík.
Tilgangur fyrirtækisins er að styðja fatlað fólk við að útvega og skipuleggja persónulega aðstoð þannig það geti stjórnað sínu eigin lífi. Notendastýrð persónuleg aðstoð er þjónusta sem skipulögð er af notandanum og miðar að því að hann eigi kost á að taka fullan þátt í þjóðfélaginu á jafnréttisgrundvelli. Hún byggir á:
- að fatlað fólk hafi fulla stjórn á allri aðstoð sem það telur sig þurfa, m.a. með því að ákveða hver, hvar, hvernig og hvenær aðstoðin er veitt.
- að fatlað fólk njóti jafnréttis og taki þátt í samfélaginu.
Fyrirtækinu verður stjórnað af og í eigu fatlaðs fólks sem mun nýta sér notendastýrða persónulega aðstoð.
Dagskrá fundarins
14:00 - Fundargestir boðnir velkomnir (Hallgrímur Eymundsson formaður NPA hópsins)
14:10 - Stutt kynning á NPA hugmyndafræðinni (Freyja Haraldsdóttir)
Sækja fyrirlestur sem PDF eða RTF.
14:30 - Kynning á ULOBA - Myndband
Sjá má myndböndin með íslenskum texta á http://www.youtube.com/user/NPAmidstodin
14:50 - Hlé
15:10 - Kynning á NPA miðstöðinni (Ragnar Gunnar Þórhallsson)
Sækja fyrirlestur sem PDF eða RTF.
15:30 - Spjallborð/umræður
16:00 - Fundi slitið
Táknmálstúlkar og rittúlkur voru auðvitað á fundinum.