Skemmtileg og fjölbreytt vinna í boði Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
miðvikudagur, 09 maí 2012 02:20

Persónulegur aðstoðarmaður óskast:

Ég heiti Ragnar Emil Hallgrímsson og er tæplega 5 ára gamall fjörkálfur. Ég þarf aðstoðarmann með mér allan sólarhringinn. Persónulegur aðstoðarmaður vinnur við að aðstoða mig og fjölskyldu mína við allar athafnir daglegs lífs.

Ég er skemmtilegur, glaðlyndur og ákveðinn leikskólastrákur og hef gaman af lífinu. Ég elska að leika við systkyni mín og vini mína, hef gaman af útiveru, tónlist og söng og eins og flestum 5 ára gömlum gaurum þá hef ég gaman af miklu fjöri og prakkaraskap.

Ég og fjölskylda mín vinnum samkvæmt hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf, sjá www.npa.is. Hugmyndafræðin byggir á mannréttindum og felst í því að fatlað fólk hafi stjórn á eigin aðstoð, hvernig hún er skipulögð, hvaða verk eru unnin og hver vinni þau, hvar og hvenær.

Eftirfarandi störf eru í boði:

Okkur vantar starfsmann í fullt starf (100%) og í hlutastarf (50-70%) en um er að ræða vaktavinnu (dag, kvöld- og næturvaktir).

Nauðsynlegt er að starfsmaður tali góða íslensku, sé stundvís, sveigjanlegur, jákvæður og barngóður. Starfsmaður þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Fyrirspurnir um starfið sendist á mömmu mína á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið með ruslpóstssíu. JavaScript verður að vera virkt í vafranum þínum til að póstfangið sjáist. og rennur umsóknarfrestur út 18. maí 2012.

 
Það er komið sumar, vantar þig vinnu? Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
þriðjudagur, 24 apríl 2012 14:48

Starf sem persónuleg aðstoðarkona gæti jafnvel hentað þér? Ég er hreyfihömluð kona á fertugsaldri og stunda nám í Háskóla Íslands og ég bý í yndislega fallegu umhverfi í Mosfellsbæ ásamt fjölskyldu. Ég þarfnast aðstoðar við ýmsar athafnir daglegs lífs m.a. við klæðnað, hreinlæti, heimilisstörf, versla inn og á ferðalögum innan lands sem utan.

Mig vantar aðstoðarkonu til starfa í 50-100% starfshlutfall sem getur hafið störf í maí. Um er að ræða sveigjanlegan vinnutíma en mig vantar aðstoð á daginn, stöku kvöld og um helgar. Ég er að leita að aðstoðarkonum á aldrinum 20-40 ára sem eru opnar fyrir fjölbreytileika lífsins, sjálfsöruggar og með þægilega nærveru. Mikilvægt er að umsækjandi hafi góða færni í mannlegum samskiptum, sé reyklaus og með bílpróf. Reynsla af því að vinna með fötluðu fólki er ekki nauðsynleg.

Ég hef sjálf mikinn áhuga á listsköpun og eru konur listnámi hvattar til að sækja um. Nú þegar hef ég tvær frábærar aðstoðarkonur í hlutastarfi en þær hverfa til annarra starfa tímabundið í sumar.

Aðstoðarkonur (Personal Assistants) starfa eftir hugmyndafræði um Sjálfstætt líf (Independent Living). Hægt er að lesa sér til um notendastýrða persónulega aðstoð og hugmyndafræði um Sjálfstætt líf á heimasíðu NPA miðstöðvarinnar á www.npa.is.

Fyrirspurnir um starfið sendist á Þetta tölvupóstfang er varið með ruslpóstssíu. JavaScript verður að vera virkt í vafranum þínum til að póstfangið sjáist. . Umsóknarfrestur er til 6. maí 2012. Umsókn merkt, NPAMOS3, ásamt ferliskrá og tilgreinið 2 meðmælendur, skal senda á Þetta tölvupóstfang er varið með ruslpóstssíu. JavaScript verður að vera virkt í vafranum þínum til að póstfangið sjáist. .

 
Do you want to become a Personal Assistant? Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
þriðjudagur, 03 apríl 2012 14:44

I am a young disabled Icelandic woman in my twenties who is looking for personal assistants (PA) so that I can live independently. I currently live in Mosfellsbær (close to Reykjavík) and I need assistance with daily life's activities such as getting dressed, my personal care, shopping and working, in school and while travelling.

What is unique about PA is that the scheme was designed and developed by persons with disabilities, on the basis of a wish for freedom and autonomy, regardless of functional ability and assistance needs. The intentions of PA are that:

  •  PA is to contribute to complete equality and participation in society.
  •  PA is to secure fundamental human rights.
  •  PA is to secure self-determination and control over own daily life and own life in general.
  •  PA is to ensure coverage of the individual's need for assistance with everyday tasks that are necessary to live and reside independently in own home.
  •  PA is to ensure the maintenance of social roles, relations and participation in society on the basis of the individual's own conditions and wishes, and with respect to age and living situation.

If you are a young woman aged 20-35 and want to join my great PA team you are welcome to apply. Applicants must be non-smoking, able to work flexible hours and drive my car. It is important that the applicants are independent, positive, responsible, have good communicability and knowledge in English. Former experience of working for people with disabilities is not required.

It is possible to both get full-time or part-time job. My PA's work all kinds of shifts, that is, day- night- or weekend shifts. The applicant must be able to start working in the beginning of June.

Applications with personal CVs shall be e-mailed to Þetta tölvupóstfang er varið með ruslpóstssíu. JavaScript verður að vera virkt í vafranum þínum til að póstfangið sjáist. by the 5th of April 2012.

 
Aðstoðarkonur á aldrinum 20-35 ára óskast! Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
þriðjudagur, 03 apríl 2012 14:39

Ert þú ung kona á aldrinum 20-35 ára í atvinnuleit? 

Ég er rúmlega tvítug kona með hreyfihömlun og leita eftir aðstoðarkonum í spennandi og krefjandi starf. Ég bý eins og er í Mosfellsbæ og stunda bæði nám og vinnu.

Ég þarfnast aðstoðar við flestar athafnir daglegs lífs, m.a. við hreinlæti, klæðnað, tiltekt, vinnu, skóla, ferðalög o.fl. svo ég geti lifað eins og hver önnur ung manneskja í íslensku samfélagi. Ég ferðast töluvert og fylgja aðstoðarkonur mér í þeim ferðum, innan lands sem utan.

Ég óska eftir aðstoðarkonum á aldrinum 20-35 ára sem eru sjálfstæðar, jákvæðar, ábyrgar og geta verið sveigjanlegar. Mikilvægt er að umsækjandi sé reyklaus, hafi góða færni í mannlegum samskiptum og grunnkunnáttu í ensku. Ekki er gerð krafa um starfsreynslu af vinnu með fötluðu fólki. Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf. Hægt er að lesa sér til um notendastýrða persónulega aðstoð og hugmyndafræði um sjálfstætt líf á heimasíðu NPA miðstöðvarinnar, www.npa.is.

Um er að ræða möguleika á bæði fullu starfi eða hlutastarfi. Starfið er í formi vaktavinnu og getur vinnan því falist í dag- kvöld- og helgarvöktum. Umsækjandi þarf að geta hafið störf í byrjun júní.

Sé frekari upplýsinga óskað, sendið fyrirspurn á: Þetta tölvupóstfang er varið með ruslpóstssíu. JavaScript verður að vera virkt í vafranum þínum til að póstfangið sjáist. . Umsóknarfrestur er til 5. apríl og skal umsókn ásamt almennri ferilskrá vera send á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið með ruslpóstssíu. JavaScript verður að vera virkt í vafranum þínum til að póstfangið sjáist. .

 


Ljósmyndabókin Frjáls