|
|
|
SamþykktirNPA miðstöðin svf.Félag um rekstur miðstöðvar um notendastýrða persónulega aðstoð
1. gr.Heiti félagsins, heimili og varnarþingFélagið heitir NPA miðstöðin svf. Heimili og varnarþing félagsins er í Reykjavík. 2. gr.Tilgangur og markmiðTilgangur félagsins er að styðja fatlað fólk við að útvega og skipuleggja persónulega aðstoð. Starfsemin skal byggja á hugmyndafræði um Sjálfstætt líf (Independent Living) og uppfylla skilyrði til aðildar að Evrópusamtökum um sjálfstætt líf (ENIL, European Network on Independent Living). Notendastýrð persónuleg aðstoð er þjónusta sem skipulögð er af notandanum og miðar að því að hann eigi kost á að taka fullan þátt í þjóðfélaginu á jafnréttisgrundvelli. Notendastýrð persónuleg aðstoð byggir á:
3. gr.StarfsemiStarfssvæði félagsins er Ísland. Starfsemin felst í:
4. gr.FélagsaðildFélagsmenn geta orðið þeir sem hafa fengið samþykktar beingreiðslur og nýta sér notendastýrða persónulega aðstoð á vegum félagsins. Með beingreiðslum er átt við að notandinn fær fjármagn greitt beint til sín og getur sjálfur ráðstafað fénu til að kaupa þá þjónustu sem hann þarf. Félagsaðild fellur brott þegar félagsmaður fullnægir ekki lengur ákvæðum samþykkta þessara um félagsaðild eða segir sig úr félaginu. 5. gr.Talsmaður félagsmannsEf þörf er á getur félagið samþykkt að félagsmaður hafi talsmann. Talsmaðurinn fer þá með samskipti við félagið í umboði félagsmanns. Félags- eða aðalfundur setur nánari reglur um talsmenn samkvæmt þessari grein. Talsmaður hefur kosningarétt í umboði félagsmanns. 6. gr.AðildargjaldAðildargjald er 10.000 kr. og skal renna í stofnsjóð. Gjaldinu má breyta til samræmis við almennar verðlagsbreytingar, gjalddaga þess og greiðsluform. 7. gr.Stjórn félagsinsStjórn félagsins skal kosin á aðalfundi og skal hún endurspegla fjölbreytileika félagsmanna, m.a. á þann hátt að meirihluta stjórnar, þ.m.t. formaður, skal skipa fatlað fólk. Stjórnina skipa formaður og fjórir stjórnarmenn, kosnir til eins árs. Að auki skulu kosnir þrír varamenn í stjórn til eins árs. Kjósa skal formann sérstaklega. Stjórnin skiptir með sér verkum á fyrsta stjórnarfundi, sem haldinn er eftir aðalfund félagins. Kjörgengir til stjórnar eru félagsmenn. Framboðum til stjórnar skal skilað skriflega til stjórnar félagsins a.m.k. 10 dögum fyrir aðalfund. Tilkynna skal framboð til formanns sérstaklega. 8. gr.AðalfundurStjórn félagsins skal boða til aðalfundar bréflega með minnst mánaðar fyrirvara. Aðalfundir skulu haldnir árlega að vori. Í fundarboði skal tilgreina dagskrá fundarins og tillögur um breytingar á samþykktum félagsins ef einhverjar eru. Óski félagsmenn eftir að teknar verði til afgreiðslu breytingar á samþykktum félagsins skulu slíkar tillögur hafa borist skriflega til stjórnar eigi síðar en 6 vikum fyrir aðalfund. Rétt til fundarsetu hafa félagsmenn. Allir félagsmenn hafa kosningarétt. Einfaldur meirihluti félagsmanna við atkvæðagreiðslur ræður úrslitum mála nema við breytingar á samþykktum þessum, en þá gildir aukinn meirihluti samkvæmt ákvæðum laga um samvinnufélög. Allir félagsmenn hafa jafnan atkvæðisrétt. Aðalfundur telst löglegur ef löglega er til hans boðað. Á aðalfundi skulu tekin fyrir eftirtalin mál í þessari röð:
9. gr.Almennir félagsfundirTil almennra félagsfunda skal boða með minnst 7 daga fyrirvara. Félagsfundi skal halda ef stjórn félagsins telur ástæðu til. Einnig geta félagsmenn óskað eftir slíkum fundi og skulu þær óskir sendar skriflega til stjórnar félagins. Óski 10% félagsmanna eftir félagsfundi er stjórn félagsins skylt að verða við slíkri ósk. Skal stjórn senda út fundarboð með dagskrá fundarins innan 14 daga frá því að ósk um fund barst stjórninni. Um rétt til fundarsetu, kosningarétt og atkvæðagreiðslur á félagsfundi gilda ákvæði 3. mgr. 8. gr. samþykkta þessara. Að auki getur stjórn félagsins ákveðið að heimila öðrum setu á félagsfundi af málefnalegum ástæðum. 10. gr.Hlutverk stjórnarHlutverk stjórnar félagsins er að móta faglegt starf sem byggir á hugmyndafræðinni um Sjálfstætt líf. Einnig að skipulag félagsins og starfsemi sé jafnan í réttu og góðu horfi. Stjórnin tekur ákvarðanir um starfsemi félagsins og málefni milli aðalfunda. Stjórnin ræður framkvæmdastjóra, sem hefur yfirumsjón með rekstri og fjármálum félagsins. Stjórnin gerir ráðningarsamning við framkvæmdastjóra og ákveður starfssvið hans að öðru leyti. Framkvæmdastjóri ræður annað starfsfólk félagsins og annast daglegan rekstur þess í samráði við stjórnina og í umboði hennar. Stjórnin ásamt framkvæmdastjóra mótar að öðru leyti stefnu félagsins og gætir hagsmuna félagsmanna í hvívetna. 11. gr.StjórnarfundirStjórnarfundi skal að jafnaði halda mánaðarlega. Formaður skal boða til stjórnarfunda, en stjórnarmaður getur krafist stjórnarfundar. Til stjórnarfunda skal boða með a.m.k. viku fyrirvara. Ákvarðanir stjórnarfundar eru því aðeins lögmætar að meirihluti stjórnar sé á fundi. Á stjórnarfundum er málum ráðið til lykta með einföldum meirihluta atkvæða. Falli atkvæði jafnt telst tillaga felld. Mikilvæga ákvörðun má þó ekki taka nema allir stjórnarmenn hafi haft tök á því að fjalla um hana. Stjórnin skal halda fundargerðarbók um meginatriði þess sem gert er og ákveðið er á fundum. 12. gr.Eignarhald og ágóðiFélagið er í eigu félagsmanna og skal starfrækt án fjárhagslegs ágóðasjónarmiðs og skal félagsmönnum ekki greiddur út arður af starfseminni. 13. gr.ReikningsárReikningsár félagsins er almanaksárið. 14. gr.Rekstrarform félagsinsFélagið skal starfa eftir lögum nr. 22/1991 um samvinnufélög. 15. gr.Slit félagsinsHægt er að slíta félaginu hafi það verið samþykkt á tveimur félagsfundum sem haldnir eru með minnst eins mánaðar millibili og með tveimur þriðju hluta atkvæða. Við slit félagsins skulu eigur þess renna til félags sem styðst við hugmyndafræði hreyfingar fatlaðs fólks um Sjálfstætt líf (Independent Living). Ákvörðun þar að lútandi skal samþykkt samhliða slitum á félaginu. Ákvæði til bráðabirgðaÞrátt fyrir ákvæði 4. gr. samþykkta þessara hefur fatlað fólk sem hyggst nýta sér notendastýrða persónulega aðstoð, en hefur hana ekki nú þegar, rétt til að ganga í félagið. Aðalfundur félagsins skal taka ákvörðun um hvenær ákvæði þessi til bráðabirgða falla úr gildi.
Samþykkt á stofnfundi NPA miðstöðvar svf. þann 16. júní 2010. |





