Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

NPA miðstöðin svf

 

Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA) er þjónusta skipulögð af þér, sem þarfnast aðstoðar til margvíslegra athafna. Þú hefur þannig fullt vald yfir eigin lífi og stjórn á allri aðstoð sem þú telur þig þurfa, m.a. með því að ákveða hvaða aðstoð er veitt, af hverjum og hvar, hvernig og hvenær. NPA byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf, mannréttindum og valdeflingu, en um er að ræða yfirfærslu á valdi frá þjónustustofnunum til þín sem stjórnanda í eigin lífi.

Hafir þú áhuga á að nota beingreiðslur og nýta þjónustu NPA miðstöðvarinnar ert þú sjálf/sjálfur við stjórnvölinn og ræður þitt eigið aðstoðarfólk. Sem stjórnandi skipuleggur þú vinnutíma og störfin, þjálfar og leiðbeinir aðstoðarfólkinu. Stjórnandi hefur samstarf við NPA miðstöðina sem vinnuveitanda aðstoðarfólks um ýmis atriði, réttindi og skyldur, er varða starfsmennina. Í NPA miðstöðinni svf ert þú félagsmaður í samvinnufélagi.

 

Þjónusta NPA miðstöðvarinnar

 

  • Veitir fötluðu fólki, sem kýs að nota beingreiðslur, aðstoð við að sækja um beingreiðslur (eða auka þær) hjá opinberum aðilum. Miðstöðin veitir einnig ráðgjöf við gerð sjálfsmats á þjónustuþörf og undirbúning þess að verða stjórnandi eigin aðstoðarfólks.

Þegar réttur til að fá NPA þjónustu er fenginn getur þú orðið félagsmaður í NPA miðstöðinni og fengið eftirfarandi þjónustu:

  • Aðstoð og ráðgjöf við starfsmannamál, svo sem að auglýsa eftir aðstoðarfólki, við ráðningar, launa- og skipulagsmál og fjölmörg praktísk atriði.
  • Fræðslu, þ.m.t. jafningjafræðslu, og ráðgjöf við að vera í hlutverki stjórnanda aðstoðarfólks.
  • Fræðslu og ráðgjöf fyrir aðstoðarfólk.

 

NPA er verkfæri til að:

 

Klippa runnana í garðinum, moka snjó, fara út með hundinn, fara í búðir, baka fyrir jól, fara í bíó, vera í skóla eða vinnu, fara á námskeið, fara í sumarfrí, skipta um bleiu á barnabarninu, fara með barninu á fótboltaæfingu, taka þátt í garðhreinsunar-deginum með nágrönnunum, undirbúa samkvæmi heima, fara í sturtu, gera við hjólastólinn, opna rauðvínsflösku, bóna bílinn, fara í sumarbústaðinn, fara á fætur, vera á ströndinni . . .

 

Hlutverk og ábyrgð þín sem stjórnanda aðstoðarfólks

 

  • Vera góður stjórnandi aðstoðarfólks.
  • Fara eftir lögum og reglum sem gilda um starfsfólk á vinnumarkaði.
  • Skapa gott starfsumhverfi.
  • Auglýsa eftir aðstoðarfólki og taka viðtöl við umsækjendur.
  • Ráðningar.
  • Gera starfslýsingu fyrir aðstoðarfólk.
  • Skipuleggja vinnutíma aðstoðarfólks.
  • Leiðbeina og þjálfa aðstoðarfólk.
  • Útvega aðstoðarfólk í afleysingar.
  • Stjórna ráðstöfun á úthlutuðum rétti til NPA þjónustu; beingreiðslur og/eða tiltekinn tímafjöldi.
  • Starfsmannasamtöl.

 

Hlutverk og ábyrgð NPA miðstöðvar

 

  • Vera góður vinnuveitandi aðstoðarfólks.
  • Aðstoða og leiðbeina félagsmönnum NPA miðstöðvar við að vera stjórnendur.
  • Upplýsingagjöf um hvað eina er lítur að NPA þjónustunni.
  • Útgáfa upplýsinga- og fræðsluefnis.
  • Greiða laun aðstoðarfólks.
  • Sjá um öll launatengd gjöld og tengdar skyldur; stéttarfélag, lífeyrissjóður, skattar o.fl.
  • NPA miðstöðin er vinnuveitandi aðstoðarfólks og auk þess að greiða laun sinnir miðstöðin ýmsum réttindum og skyldum sem reglur vinnumarkaðarins kveða á um.
  • Upplýsa félagsmenn með reglulegum yfirlitum um ráðstöfun og notkun á úthlutuðum rétti til NPA þjónustu; launagreiðslur, vinnutímafjölda og annar kostnaður.
  • Upplýsa opinberan aðila (sveitarfélag/ríkið) um notkun á úthlutuðum NPA rétti (beingreiðslum/tímafjölda).
  • NPA miðstöðin sér um að innheimta NPA beingreiðslur hjá sveitarfélagi/ríki að viðbættum umsýslugjöldum sem notuð eru til að reka miðstöðina og veita þjónustu hennar.
 

Ljósmyndabókin Frjáls