Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Vilt þú gerast meðeigandi í NPA miðstöðinni svf?

 

Í samþykktum NPA miðstöðvarinnar svf, sem samþykktar voru á stofnfundi hennar þann 16. júní sl., segir í 4. gr:

„Félagsmenn geta orðið þeir sem hafa fengið samþykktar beingreiðslur og nýta sér notendastýrða persónulega aðstoð á vegum félagsins. Með beingreiðslum er átt við að notandinn fær fjármagn greitt beint til sín og getur sjálfur ráðstafað fénu til að kaupa þá þjónustu sem hann þarf."

Í ákvæði til bráðabirgða, sem samþykkt var á sama fundi, segir svo:

„Þrátt fyrir ákvæði 4. gr. samþykkta þessara hefur fatlað fólk sem hyggst nýta sér notendastýrða persónulega aðstoð, en hefur hana ekki nú þegar, rétt til að ganga í félagið.

Aðalfundur félagsins skal taka ákvörðun um hvenær ákvæði þessi til bráðabirgða falla úr gildi."

Stofnfélagar NPA miðstöðvarinnar, þann 16. júní sl., voru 33 talsins, en ljóst er að þeim þarf að fjölga verulega til þess að baráttan skili sem bestum og skjótustum árangri.

Við hvetjum þig, ef þú telur þig þurfa á notendastýrðri persónulegri aðstoð að halda, til að ganga til liðs við NPA miðstöðina og leggja þitt af mörkum með aðild og eignarhaldi.

Félagsgjald í NPA miðstöðinni er aðeins 10 þúsund króna eingreiðsla og þar með ert þú orðinn meðeigandi.

Til að gerast félagsmaður og meðeigandi, sendu tölvupóst á Freyju Haraldsdóttur Þetta tölvupóstfang er varið með ruslpóstssíu. JavaScript verður að vera virkt í vafranum þínum til að póstfangið sjáist. eða hringdu í síma 691-2722. Freyja hefur m.a. tekið að sér að veita ráðgjöf fyrir hönd NPA miðstöðvarinnar.

Í tölvupósti þarf að koma fram eftirfarandi:

* nafn

* kennitala

* heimilisfang

* póstnúmer

* símanúmer

* netfang

* nafn tengiliðar (ef við á)

 

Stattu með okkur í baráttunni fyrir sjálfsögðum mannréttindum fatlaðs fólks á Íslandi!