Hvað felst í hugmyndafræði um sjálfstætt líf?
Hugmyndafræði um Sjálfstætt líf (e. Independent living) á rætur sínar að rekja til Bandaríkjanna og felur í sér að allar manneskjur, óháð eðli og alvarleika skerðingar, geta tekið eigin ákvarðanir ef þeim er gefið færi á því. Einnig felur hún í sér að allar manneskjur hafi rétt til þess að hafa stjórn á eigin lífi og taka fullan þátt á öllum sviðum lífsins.
Sjálfstætt líf er ekki yfirlýsing fatlaðs fólks um að það vilji gera allt sjálft án aðstoðar frá öðrum eða sækist eftir að lifa í einangrun. Hugmyndafræðin er krafa um val og stjórn í daglegu lífi okkar en slíkt er talið sjálfsagt fyrir flest ófatlað fólk. Fatlað fólk vill alast upp í eigin fjölskyldum, ganga í almennan skóla, taka sama strætóinn og fólkið í hverfinu, vinna við það sem er í takt við menntun og áhuga þess, flytja að heiman og eignast fjölskyldu.
Sjálfstætt líf með notendastýrðri persónulegri aðstoð
Nú er í auknum mæli boðið upp á beingreiðslur til notenda fyrir þá sem það kjósa á Norðurlöndum, í Bretlandi og víðar. Greiðslan á að dekka allan kostnað og á þjónustumatið að byggjast á þeirri aðstoð sem við þurfum, og auk þess beinan og óbeinan kostnað við utanumhald og rekstur aðstoðarmannakerfisins, uppihald aðstoðarfólks á ferðalögum og kostnað við annað sem við þurfum að gera. Með þessum greiðslum getum við valið okkur þjónustu frá hvaða þjónustufyrirtæki sem er.
Svona getum við náð hámarks stjórn á eigin aðstoð og skipulagt og hannað hana eftir einstaklingsbundnum þörfum okkar og lífsstíl. Þar með getum við ákveðið sjálf hver vinnur fyrir okkur, hvaða verk, hvenær, hvar og hvernig.
Hvert er hlutverk aðstoðarfólks?
Aðstoðarfólk hefur sýnar skyldur og fer það eftir einstaklingsbundnum óskum okkar hvaða verk það vinnur, hvenær, hvar og hvernig. Fyrst og fremst er um að ræða aðstoð við þær athafnir daglegs lífs sem við þurfum á að halda. Verkefnin eru fjölþætt og geta í raun falist í hverju sem er, m.a. að:
- vera bílstjóri
- vinna heimilisverkin
- vinna í garðinum
- moka snjóinn
- aðstoða í bíó
- opna og lesa póst
- fara út að ganga með hundinn
- aðstoða við innkaup
- aðstoða í vinnu
- spila fótbolta
- opna vínflösku
|
- aðstoða við umönnun barna
- aðstoða við hreinlæti
- laga hjólastól
- skipta um dekk
- fara í messu
- kafa í kóralrifunum
- eiga samskipti
- skrifa jólakortin
- lesa dagblaðið
- kjósa
- fara í ferðalög
|
Er notendastýrð persónuleg aðstoð hugsuð fyrir alla, óháð skerðingu, stöðu og aldri?
Já. Þegar notendur eru undir lögaldri, með þroskahömlun eða geðröskun og þurfa aðstoð þriðja aðila við að halda utan um þjónustuna er valinn talsmaður sem tekur að sér hlutverk vinnuveitanda.
|