|
|
|
Hugmyndafræðin
NPA miðstöðin byggir vinnu sína á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf (Independent living). Hugmyndafræðin á rætur sínar að rekja til mannréttindabaráttu fatlaðs fólks á 8. áratug 20. aldar og felur í sér að:
Hugmyndafræðin um sjálfstætt líf leggur mikla áherslu á nýjan skilning á hugtakinu sjálfstæði. Hinn nýji skilningur byggir á því að sjálfstæði sé fólgið í því að hafa stjórn, val og möguleika til fullrar þátttöku og til sjálfstæðs lífs með persónulegri aðstoð á öllum sviðum lífsins. Í því samhengi hefur fatlað fólk lagt þunga áherslu á að það að einhver þurfi aðstoð við athafnir daglegs lífs þýði ekki hjálparleysi. Ennfremur að án þess að hafa frelsi til athafna og stjórn á eigin lífi með persónulegri aðstoð getur fatlað fólk ekki uppfyllt hlutverk sín og ábyrgð eins og aðrir borgarar. |





