| Ráðstefna 10. febrúar: Notendastýrð persónuleg aðstoð |
|
|
|
| mánudagur, 06 febrúar 2012 16:15 |
|
Verkefnisstjórn um notendastýrða persónulega aðstoð heldur ráðstefnu 10. febrúar þar sem kynnt verður hugmyndafræði, framkvæmd og skipulag slíkrar þjónustu. Ráðstefnan verður einnig send út á Netinu. Verkefnisstjórnin var skipuð í apríl 2011 í samræmi við bráðabirgðaákvæði IV í lögum um málefni fatlaðs fólks nr. 59/1992. Hlutverk hennar að móta ramma um fyrirkomulag notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar og innleiða samstarfsverkefni ríkis, sveitarfélaga og heildarsamtaka fatlaðs fólks um innleiðingu þessarar tegundar þjónustu. Samkvæmt bráðabirgðaákvæðinu skulu sveitarfélög í samráði við verkefnisstjórnina leitast við að bjóða fötluðu fólki notendastýrða persónulega þjónustu í tiltekinn tíma. Verkefninu á að ljúka fyrir árslok 2014 með faglegu og fjárhagslegu mati á framkvæmd þess. Á ráðstefnunni verður gerð grein fyrir stöðuúttekt á vinnu verkefnisstjórnarinnar og lýst verklagi á fyrsta áfanga verkefnisins en yfirskriftin er: Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA): Hugmyndafræði, framkvæmd, skipulag, samningar og fjármögnun. Staður og stundRáðstefnan 10. febrúar verður haldin á Icelandair Hótel Reykjavík Natura. Móttaka ráðstefnugesta hefst kl. 10:30 en dagskráin byrjar kl. 11:00 með ávarpi Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra. Ráðstefnunni lýkur kl. 16.00. Útsending á NetinuBein útsending verður frá ráðstefnunni á Netinu og verður hún aðgengileg á vef velferðarráðuneytisins á slóðinni: http://www.vel.is/npa SkráningSkráning þátttakenda fer fram á heimasíðu NPA: http://www.vel.is/npa. Þeir sem kjósa að fylgjast með ráðstefnunni á vefnum skrái sig einnig á heimasíðu NPA http://www.vel.is/npa og verða gögn sem kynnt verða á ráðstefnunni verða send viðkomandi. StuðningurÓski þátttakendur sérstaks stuðnings við að taka þátt í ráðstefnunni eru þeir beðnir um að koma þeim óskum á framfæri fyrir 1. febrúar næstkomandi á vef verkefnisstjórnarinnar:http://www.vel.is/npa |






