Félagsfundur NPA miðstöðvarinnar Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
þriðjudagur, 27 september 2011 10:57

Ágætu félagar!

Þriðjudaginn 4. október nk. kl. 20:00-22:00 mun stjórn NPA miðstöðvarinnar standa fyrir félagsfundi. Fundurinn verður haldinn í NPA miðstöðinni, í húsnæði Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Keldnaholti í Grafarvogi. Megin viðfangsefni fundarins verður að skoða hvar miðstöðin er stödd í sínu starfi og hvað er framundan, auk þess sem við fáum kynningu frá Vilborgu Jóhannsdóttur, lektor, sem vinnur nú doktorsrannsókn um innleiðingu á notendastýrðri persónulegri aðstoð á Íslandi. 

Við vekjum athygli á að á fundinum munum við kynna helstu markmið stjórnar fyrir veturinn og kynna vinnuhópa sem settir hafa verið á stað til þess að flýta fyrir þróun á miðstöðinni og að árangur náist. Í viðhengi með fundarboði sem sent var til félagsmanna má sjá skiptingu vinnuhópa og hvetjum við áhugasama félagsmenn til þátttöku í þessum hópum. Margar hendur vinna létt verk. Hægt verður að skrá sig í vinnuhóp á fundinum á morgun og einnig er hægt að senda tölvupóst.


Dagskrá:

20:00-20:05 Fundarsetning – Embla Ágústsdóttir, formaður stjórnar

20:05-20:10 Kosning fundarstjóra og fundarritara

20:10-20:15 Kynning viðstaddra

20:15-20:25 Fundargerð síðasta félagsfundar borin upp til samþykktar

20:25-20:40 Fréttir af starfi og vinnudegi NPA miðstöðvarinnar – Embla Ágústsdóttir, formaður

20:40-21:10 Innleiðing á notendastýrðri persónulegri aðstoð: kynning á doktorsrannsókn og samstarfi við NPA miðstöðina – Vilborg Jóhannsdóttir, lektor

21:10-21:30 Kaffihlé

21:30-21:45 Kröfu- og frelsisganga fatlaðs fólks í Strasbourg, Frakklandi – Freyja Haraldsdóttir, framkvæmdarstjóri

21:45-21:55 Önnur mál

21:55-22:00 Fundarslit

 

Við hvetjum alla til að mæta og kynna sér vel hvað miðstöðin er að gera og hvar málin eru stödd. Jafnframt hvetjum við ykkur til þátttöku í vinnuhópum.

 

Við hlökkum til að sjá ykkur.

Stjórn og framkvæmdastjóri

 

Ljósmyndabókin Frjáls