Fréttir, tilkynningar og annað efni

Hér má finna fréttir, tilkynningar og fleira sem hefur verið birt á npa.is.

Einnig er hægt að gerast áskrifandi af RSS hnappurRSS fréttaveitu og leita í greinunum.



Ráðstefna 10. febrúar: Notendastýrð persónuleg aðstoð Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
mánudagur, 06 febrúar 2012 16:15

Verkefnisstjórn um notendastýrða persónulega aðstoð heldur ráðstefnu 10. febrúar þar sem kynnt verður hugmyndafræði, framkvæmd og skipulag slíkrar þjónustu. Ráðstefnan verður einnig send út á Netinu. 

Verkefnisstjórnin var skipuð í apríl 2011 í samræmi við bráðabirgðaákvæði IV í lögum um málefni fatlaðs fólks nr. 59/1992. Hlutverk hennar að móta ramma um fyrirkomulag notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar og innleiða samstarfsverkefni ríkis, sveitarfélaga og heildarsamtaka fatlaðs fólks um innleiðingu þessarar tegundar þjónustu.

Samkvæmt bráðabirgðaákvæðinu skulu sveitarfélög í samráði við verkefnisstjórnina leitast við að bjóða fötluðu fólki notendastýrða persónulega þjónustu í tiltekinn tíma. Verkefninu á að ljúka fyrir árslok 2014 með faglegu og fjárhagslegu mati á framkvæmd þess.

Á ráðstefnunni verður gerð grein fyrir stöðuúttekt á vinnu verkefnisstjórnarinnar og lýst verklagi á fyrsta áfanga verkefnisins en yfirskriftin er: Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA): Hugmyndafræði, framkvæmd, skipulag, samningar og fjármögnun.

Staður og stund

Ráðstefnan 10. febrúar verður haldin á Icelandair Hótel Reykjavík Natura. Móttaka ráðstefnugesta hefst kl. 10:30 en dagskráin byrjar kl. 11:00 með ávarpi Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra.  Ráðstefnunni lýkur kl. 16.00.

Útsending á Netinu

Bein útsending verður frá ráðstefnunni á Netinu og verður hún aðgengileg á vef velferðarráðuneytisins á slóðinni: http://www.vel.is/npa

Skráning

Skráning þátttakenda fer fram á heimasíðu NPA: http://www.vel.is/npa. Þeir sem kjósa að fylgjast með ráðstefnunni á vefnum skrái sig einnig á heimasíðu NPA http://www.vel.is/npa og verða gögn sem kynnt verða á ráðstefnunni verða send viðkomandi.

Stuðningur

Óski þátttakendur sérstaks stuðnings við að taka þátt í ráðstefnunni eru þeir beðnir um að koma þeim óskum á framfæri fyrir 1. febrúar næstkomandi á vef verkefnisstjórnarinnar:http://www.vel.is/npa

 
Styrkur frá Samfélagssjóði Landsbankans Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
miðvikudagur, 30 nóvember 2011 16:16

Föstudaginn 25 nóvember veitti Landsbankinn 15 milljónir króna í samfélagsstyrki í fyrsta sinn úr nýjum Samfélagssjóði bankans.

Landsbankastyrkur

Veittir voru þrjátíu og fimm styrkir, fimm styrkir að upphæð 1 milljón króna hver, tíu styrkir að fjárhæð 500 þúsund krónur og tuttugu styrkir að fjárhæð 250 þúsund krónur. Ríflega 500 umsóknir bárust um styrki úr Samfélagssjóði Landsbankans.

NPA miðstöðin var í hópi þeirra tíu sem hlutu styrk uppá hálfa miljón króna og er styrkurinn sérstaklega eyrnamerkur því að NPA miðstöðin geti haldið fræðslufundi og lengri námskeið til að efla mannréttindavitund fatlaðs fólks og bæta þannig réttarstöðu þess í íslensku samfélagi.

 


Við hjá NPA miðstöðinni þökkum Landsbankanum kærlega fyrir stuðningin. 

 
Ljósmyndabókin Frjáls Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
mánudagur, 28 nóvember 2011 22:36

Jólagjöf sem dregur úr fordómum og styður mannréttindabaráttu fatlaðs fólks!

KápumyndFatlað fólk er oft álitið sjúkt, óhæft, afbrigðilegt og gallað og er þar með útilokað frá grundvallar mannréttindum eins og að geta gengið í almennan skóla, stundað atvinnu á almennum vinnumarkaði, flutt að heiman í eigin íbúð, eignast fjölskyldu, tekið þátt í stjórnmálum, ferðast erlendis og notið menningar og tómstunda. Það gerir það að verkum að fatlað fólk er ósýnilegt og útilokað og á erfitt með að hafa áhrif á viðhorfin sem myndast í samfélaginu og berjast fyrir jöfnum réttindum. Staða þess verður því viðfangsefni fagfólks og fjölmiðla sem oft á tíðum birtir það í öfgafullum hlutverkum sem ýmist hetjur eða fórnarlömb. Hetjur fyrir það eitt að vakna á morgnana og klæða sig og fórnarlömb vegna þeirra ,,hræðilegu örlaga” að geta ekki gengið, séð, heyrt eða verið með samfélagslega viðurkennda greindarvísitölu.

NPA miðstöðin, sem er samvinnufélag fatlaðs fólks um notendastýrða persónulega aðstoð og sjálfstætt líf, hefur ákveðið að tími sé til komin að taka ábyrgð og hafa áhrif til breytinga og mun á alþjóðadegi mannréttinda, þann 10. desember 2011, gefa út ljósmyndabókina Frjáls.

Ljósmyndir bókarinnar eru teknar af Hallgrími Guðmundssyni en hann er einn af eigendum NPA miðstöðvarinnar fyrir hönd sonar síns sem er fjögra ára leikskólastrákur og eðaltöffari. Hann er með hreyfihömlun og langvarandi sjúkdóm og notar notendastýrða persónulega aðstoð. Með þá reynslu í farteskinu hefur hann gott auga fyrir þeim skilaboðum sem fyrirsætur bókarinnar vilja koma á framfæri til samfélagsins. Hallgrímur Guðmundsson, ljósmyndari bókarinnar

Markmiðið með útgáfu bókarinnar er tvíþætt. Annars vegar að skapa jákvæðar fyrirmyndir af fötluðu fólki fyrir fatlað fólk sjálft og sýna fram á, í máli og myndum, að þegar hindranir eru ruddar úr vegi og viðeigandi aðstoð veitt er fatlað fólk, líkt og ófatlað fólk, jafn fært um að vera frjálst, taka þátt í samfélaginu og lifa sjálfstæðu lífi. Hins vegar er markmiðið að skapa vitundarvakningu í samfélaginu, í samræmi við 8. grein samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem Ísland hefur undirritað, og auka þannig meðvitund samfélagsins um mannréttindi og jafnrétti fatlaðs fólks og vekja athygli á að um er að ræða hóp sem getur lifað sjálfstæðu lífi, sinnt ólíkum hlutverkum og uppfyllt skyldur sem borgarar í íslensku samfélagi.

Fólkið sem birtist í bókinni hefur þurft að berjast af öllum mætti fyrir hlutum sem flestir hugsa ekki um eins og að geta keyrt bíl, lifað fjölskyldulífi, ferðast erlendis, gefið öndunum brauð, spilað skák, átt samskipti, gengið í almennan skóla, lesið stórar og þungar bækur og brunað um fjöll og fyrnindi á fjórhjóli. Baráttan hefur þó skilað árangri þrátt fyrir að um fjölbreyttan hóp sé að ræða.

Þessir venjulegu Íslendingar sem birtast í bókinni Frjáls eru dæmi um að það skiptir ekki nokkru einasta máli hversu mikið þeir geta hreyft sig, heyrt og séð til að geta lifað sjálfstæðu lífi. Það sem skiptir fólkið öllu máli er að vera í umhverfi þar sem það nýtur virðingar líkt og allir aðrir, hefur aðgang að samfélaginu og fær aðstoð sem það getur stýrt sjálft og þannig mótað sinn eigin lífstíl. Í bókinni glittir hvergi í afbrigðileika, harmleik eða vandamál. Þar eru engar hetjur né fórnarlömb – einfaldlega venjulegt íslenskt fólk, börn og fullorðnir, sem krefst þess að lifa sjálfstæðu lífi og vera frjálst. Það krefst þess ekki einungis fyrir sig – það krefst þess fyrir hönd allra.

NPA miðstöðin mun hefja sölu á ljósmyndabókinni Frjáls 10. desember 2011 og mun allur ágóði hennar renna til miðstöðvarinnar sem hefur það markmið að berjast fyrir frelsi, sjálfstæðu lífi og jafnrétti fatlaðs fólks.

Við tókum þá stefnu upphaflega að selja bókina á eins lágu verði og okkur er unnt því við leggjum áherslu á að hún rati inn á flest heimili og vinnustaði landsins. Bókin mun vera seld á 3.900 kr. stk.

Ljósmyndabókin Frjáls er bæði á íslensku og ensku. Hún er tilvalin jólagjöf fyrir allan aldur því með henni er hægt að taka þátt í að draga úr fordómum og styðja við baráttu fatlaðs fólks fyrir grundvallar mannréttindum.

 

Til að panta bókina vinsamlegast hafið samband við framkvæmdastýru NPA miðstöðvarinnar á Þetta tölvupóstfang er varið með ruslpóstssíu. JavaScript verður að vera virkt í vafranum þínum til að póstfangið sjáist. .

 
,,Hver er forstöðukonan?” Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
þriðjudagur, 22 nóvember 2011 22:22

Notendastýrð persónuleg aðstoð og fólk með þroskahömlun

Þriðjudagskvöldið 29. nóvember kl. 20:00-22:00

NPA miðstöðin, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Keldnaholti, Grafarvogi

Fólk með þroskahömlun hefur árum saman vera álitið eilíf börn, ófært um að sjá um sig sjálft og hafa vit fyrir sér. Þessar rótgrónu hugmyndir hafa stuðlað að því að fólk með þroskahömlun hefur verið aðgreint og útilokað frá samfélaginu og orðið að viðfangsefni fagfólks sem oft á tíðum hefur stimplað það óhæft til að taka ákvarðanir og hafa vald yfir eigin lífi.
Þessar hugmyndir hafa svo sannarlega verið kúgandi fyrir þennan hóp fólks og haft áhrif á baráttu þess fyrir sjálfstæðu lífi. Í umræðu um notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) má heyra háværar raddir í þessum anda þar sem kemur fram að fólk með þroskahömlun geti ekki haft NPA, t.d. vegna þess að það ,,stuðli að félagslegri einangrun og offitu.”
Fólk með þroskahömlun hefur sýnt og sannað annað víða um heim en stór hluti þess er með NPA á Norðurlöndunum og víðar. Hér á Íslandi hefur fatlað baráttufólk, m.a. fólk með þroskahömlun, barist fyrir NPA. Á þessum fræðslufundi NPA miðstöðvarinnar mun varaformaður stjórnar, Gísli Björnsson, segja frá reynslu sinni af því að vera með þroskahömlun og nota NPA og því að vera með talskonu sér til stuðnings við verkstjórnarvaldið. Jafnframt mun Helga Baldvins- og Bjargardóttir (BA í þroskaþjálfafræði og BA í lögfræði) og MA nemi í lögfræði fjalla um Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks með sérstöku tilliti til sjálfstæðs lífs, sjálfsákvörðunar og réttarstöðu til jafns við aðra.

Dagskrá:

  1. ,,Hver ræður yfir Gísla? Hver er forstöðukonan?” – Gísli Björnsson og Auður Finnbogadóttir
  2. Kaffi
  3. Mannréttindi fatlaðs fólks: Mega allir taka sínar eigin ákvarðanir? – Helga Baldvins- og Bjargardóttir
  4. Samantekt og umræður

Fundarstýra: Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir
Vinsamlegast látið Freyju vita á Þetta tölvupóstfang er varið með ruslpóstssíu. JavaScript verður að vera virkt í vafranum þínum til að póstfangið sjáist. ef þið þurfið aðstoð táknmáls- eða rittúlka.
Við hvetjum alla til að mæta, bæði eigendur NPA miðstöðvarinnar og aðra áhugasama!

Lesa meira...
 
Opin fræðslufundur Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
mánudagur, 24 október 2011 22:47

Hvað getum við lært af öðrum hópum í mannréttindabaráttu okkar?


Þriðjudaginn 1. nóvember verður NPA miðstöðin með sinn fyrsta opna fræðslufund kl. 20:00-22:00 undir yfirskriftinni ,,Hvað getum við lært af öðrum hópum í mannréttindabaráttu okkar?"

Markmiðið með fundinum er að skoða hvað barátta fatlaðs fólks fyrir mannréttindum á sameiginlegt með mannréttindabaráttu annarra hópa, t.d. kvenna og samkynhneigðs fólks og hvað við getum lært af árangursríku leiðum þeirra.

Embla Ágústsdóttir mun fjalla um upplifun sína af því að hafa persónulega aðstoð og hvernig það hefur áhrif á hennar líf sem konu sem tilheyrir fleiri en einum minnihlutahópi. Frosti Jónsson mun gefa okkur innsýn inn í þátttöku sína í mannréttindabaráttu samkynhneigðs fólks og Silja Bára Ómarsdóttir mun fjalla um reynslu sína af mannréttindabaráttu, m.a. kvenna. 

Dagskrá:

1. Að vera sexí með persónulegri aðstoð: Embla Ágústsdóttir, formaður NPA miðstöðvarinnar.
2. Þögnin rofin - baráttan um sýnileikann: Frosti Jónsson, markaðsfræðingur og fyrrum formaður Samtakanna ´78.
3. Þátttaka mín í mannréttindabaráttu: Silja Bára Ómarsdóttir, aðjúnkt við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands og femínisti.

Fundarstýra: Freyja Haraldsdóttir

Vinsamlegast sendið okkur póst á  Þetta tölvupóstfang er varið með ruslpóstssíu. JavaScript verður að vera virkt í vafranum þínum til að póstfangið sjáist. ef þörf er á rit- eða táknmálstúlkum.

Við hlökkum til að sjá ykkur fjölmenna!


NPA miðstöðin!

 

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 6