Bakvarðarsveit
Hvað er bakvarðarsveit?
Bakvarðarsveit er öryggisnet fyrir félagsfólk NPA miðstöðvarinnar þar sem hún er leið til þess að tryggja samfellu í þjónustu og koma þar með í veg fyrir að verkstjórnendur verði án nauðsynlegrar þjónustu. Með tilkomu bakvarðarsveitar er verkstjórnendum veittur aðgangur að stærri og sveigjanlegri hópi fólks sem hægt er að kalla til með stuttum fyrirvara.
Bakvarðarsveitin samanstendur þá af einstaklingum sem hægt er að hafa samband við þegar forföll koma upp og ekki tekst að manna vakt innan eigin hópi aðstoðarfólks. Í hópnum eru bæði einstaklingar sem starfa innan miðstöðvarinnar sem og utan hennar en þó að uppfylltum skilyrðum.
Skilyrði fyrir þátttöku í bakvarðarsveit eru:
- Hafa reynslu af NPA störfum
- Getað framvísað góðum meðmælum
- Vera 20 ára eða eldri
Bakvarðarsveitin er eingöngu hugsuð sem neyðarúrræði.
Hvað felst í þjónustunni?
Markmið þjónustunnar er að koma í veg fyrir rof á þjónustu og tryggja að verkstjórnendur hafi ávallt aðgang að nauðsynlegri aðstoð.
- Aðgang að aðstoðarfólki með stuttum fyrirvara
- Lausnir við bráðri mönnunarþörf vegna veikinda eða annarra forfalla aðstoðarfólks
- Aukið öryggi
og stuðning fyrir verkstjórnendur í krefjandi aðstæðum
Umsóknarform
Ef þú hefur áhuga á að ganga til liðs við bakvarðarsveit NPA miðstöðvarinnar, vinsamlegast fylltu út umsóknarformið hér að neðan. Upplýsingarnar verða notaðar af ráðgjafa til að útbúa ráðningarsamning vegna þátttöku í bakvarðarsveit.
Ráðgjafi mun senda samninginn til þín til rafrænnar undirritunar og því nauðsynlegt að umsækjendur hafi rafræn skilríki. Ef þú ert ekki með rafræn skilríki getur þú haft samband við Auðkenni á netfanginu audkenni@audkenni.is.
Athugið: Með því að fylla út og senda umsóknarformið samþykkir þú að vera skráð/ur á lista bakvarðarsveitar NPA miðstöðvarinnar. Jafnframt veitir þú ráðgjöfum heimild til þess að hafa samband við þig og bjóða þér vaktir.